„Hleyp jafn hratt og Mikael“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. apríl 2026 11:04 Markús Páll Ellertsson eftir fyrsta deildarleik sinn fyrir ÍA. vísir/guðmundur Markús Páll Ellertsson lék uppeldisfélag sitt grátt í fyrstu umferð Bestu-deildar karla þegar hann skoraði tvö mörk fyrir ÍA gegn Fram í Úlfársárdalnum. Markús er nýkominn frá Ítalíu og ætlar sér aftur út í atvinnumennskuna.
Markús var kynntur sem nýr leikmaður ÍA í síðasta mánuði og gekk hann til liðs við Akranesliðið frá ítalska C-deildarliðinu Triestina. Hann er uppalinn hjá Fram eins og bróðir hans, landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson sem spilar með Genoa á Ítalíu. Það má með sanni segja að tímabilið hafi farið vel af stað hjá Markúsi í nýrri treyju. „Ég var búinn að bíða eftir þessu þannig að það var gott að fyrsti leikurinn var á móti Fram, á heimavelli mætti segja,“ sagði Markús í samtali við Stefán Árna Pálsson í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir að það hafi verið sérstakt að spila á móti Fram. „Já, þetta er uppeldisfélagið og maður fylgist alltaf með þeim. Meðan ég var úti horfði maður alltaf á leiki hjá þeim og hélt alltaf með þeim.“ Markús kann vel við sig á Akranesi þótt ekki sé langt síðan hann gekk í raðir ÍA. „Ég rifti og svo var einn dagur sem ég hugsaði hvað ég ætlaði að gera og hvað væri næsta skref. Ingimar framkvæmdastjóri ÍA hringdi snögglega og við tókum fund með Lárusi. Svo tók ég ákvörðunina daginn eftir,“ sagði Markús sem stefnir að því að fara aftur í atvinnumennskuna. „Stundum þarf maður að stíga skref til baka til að komast lengra,“ sagði Markús. Hann á sterka fyrirmynd í bróður sínum sem er í stóru hlutverki hjá Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni. „Hann er goðið mitt og ég horfi voðalega mikið á hann spila. Það er gaman að sjá hvað hann er að gera,“ sagði Markús. Mikael er afar sprettharður en Markús segist ekki síðri á því sviði. „Við tókum einn sprett í sumar. Það var jafnt,“ sagði Markús. Fréttina má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla ÍA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sjá meira