Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Agnar Már Másson skrifar 16. apríl 2026 18:18 Kristján Ásmundsson hefur starfað við FS í fjóra áratugi en hefur nú fengið nóg. Fjölbrautaskóli Suðurnesja „Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.
Kristján sagði skólameistarastarfi sínu lausu í dag eftir að hafa starfað við Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) í fjóra áratugi. Hann vísaði til þess að menntamálaráðuneytið hefði engar ákvarðanir hafi verið teknar um tímasetningu eða annað varðandi viðbyggingu við skólann. Starfsmenn Fjölbrautaskóla Suðurnesja fordæmdu vinnubrögð og framkomu barna- og menntamálaráðuneytisins. En í yfirlýsingu mennta- og barnamálaráðuneytisins sem birtist svo síðdegis segir vissulega að ráðuneytið vinni að uppbyggingu verknámsaðstöðu framhaldsskóla víðs vegar um landið, þar á meðal við FS. Ráðuneytið segir að hönnun á verknámsaðstöðunni sé fyrirhuguð í júní, verkframkvæmdir geti hafist í janúar 2026 og stefnt sé að verklokum 2028. Það er þó ekki nóg, að sögn Kristjáns, enda sé þarna aðeins gert ráð fyrir verknámsaðstöðu, en enn vanti bætta aðstöðu undir bóknám. Skólinn haldi meðal annars úti kennslustundum í tveimur gámum og leigi auk þess á tveimur stöðum til að halda utan um bóklega kennslu. „Það er mjög gott að það eigi að hefja hönnun og framkvæmd þarna, en við erum eftir sem áður ekki síður í vandræðum varðandi bóklega kennslu,“ heldur hann áfram. Fyrir tveimur árum hafi viljayfirlýsing verið undirrituð um frekari uppbyggingu en enn liggi engin plön fyrir varðandi uppbyggingu fyrir bóklega kennslu. Kristján segir að svörin frá ráðamönnum hafi lengi verið þau sömu: „Það er allt að gerast og allir af vilja gerðir,“ hefur hann óbeint eftir starfsmönnum ráðuneytisins og bætir svo sjálfur við: „En ég hef ekki séð útfærslu að því. Búinn að bíða og bíða.“ Hvað tekur við nú hjá Kristjáni er óljóst. Líklega eftirlaun. „Ég er bara á gömlu 95 ára reglunni,“ segir Kristján, sem er á 67. aldursári. Hann segist munu gegna skólameistarastarfinu til 1. ágúst „Þannig að maður hefur tíma til að hugsa sinn gang varðandi það. Eða bara fara á eftirlaun.“
Skóla- og menntamál Reykjanesbær Grindavík Suðurnesjabær Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Framhaldsskólar Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira