Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. apríl 2026 11:01 Lögregla braut sér leið inn í bankann gegnum gluggana en þá voru ræningjarnir á bak og burt. Getty/Paolo Manzo Vopnaðir ræningjar héldu 25 einstaklingum í gíslingu í útibúi bankans Crédit Agricole í Napólí á Ítalíu í gær. Fólkið, viðskiptavinir og starfsmenn, var frelsað af lögreglu eftir tvo tíma en þá voru ræningjarnir á bak og burt.
Ræningjarnir voru þrír og gengu inn í bankann klukkan 11:30 að staðartíma. Að sögn eins viðskiptavinar, sem tekinn var í gíslingu, voru mennirnir vopnaðir en beittu fólkið ekki ofbeldi. Gíslarnir voru læstir inni í herbergi á meðan ræningjarnir athöfnuðu sig. Ekki liggur fyrir hvort þeir höfðu eitthvað á brott og þá hvað en fregnir herma að þeir hafi freistað þess að komast í öryggishólf. Þeir létu sig síðan hverfa niður um holu í gólfinu, sem er sögð hafa leitt niður í holræsakerfi borgarinnar. Svipað rán átti sér stað í útibúi Crédit Agricole í Mílanó árið 2020. Þar gengu tveir ræningjanna inn um aðaldyrnar og tóku gísla, á meðan tveir aðrir komu inn um viðhaldsgöng eftir að hafa skriðið gegnum holræskerfið. Í því tilviki höfðu þjófarnir nokkur öryggishólf á brott með sér. Guardian greindi frá.
Ítalía Erlend sakamál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira