Viðskipti innlent

Ráðin nýr sjálf­bærni­stjóri Póstsins

Atli Ísleifsson skrifar
María Kjartansdóttir.
María Kjartansdóttir.

María Kjartansdóttir hefur verið ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins.

Í tilkynningu segir að áfram verði lögð áhersla á að draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins og axla samfélagsábyrgð með traustri og ábyrgri þjónustu um allt land.

„María lauk MSc-gráðu í umhverfis - og auðlindafræði frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, með áherslu á samfélagsábyrgð fyrirtækja og umhverfisstjórnun, og hefur starfað á því sviði í meira en áratug. Hún kemur til Póstsins frá Landsvirkjun þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri í sjálfbærni og mun koma til með að vinna með starfsfólki Póstsins á mörgum sviðum, t.a.m. fjármálasviði,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×