D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Samúel Karl Ólason skrifar 20. apríl 2026 18:08 Celeste Rivas Hernandez var þrettán ára þegar hún hvarf í apríl 2024. Lík hennar fannst í september í fyrra. AP/Damian Dovarganes Bandaríski tónlistarmaðurinn David Burke, eða D4vid, hefur verið ákærður fyrir að myrða hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez. Sundurbútað og rotið lík hennar fannst í yfirgefnum bíl hans í Los Angeles í september en hún hafði þá verið týnd um nokkuð skeið.
Fjölskylda Hernandez lýsti fyrst eftir henni í apríl 2024, þegar hún var þrettán ára gömul, en lögreglan segir að hún hafi verið orðin fjórtán þegar hún var myrt. Hún hefði orðið fimmtán ára gömul degi áður en lík hennar fannst þann 8. september. Líkið fannst í framskotti Teslu sem var skráð á D4vd. Þá var verið að draga bílinn og fannst mikil og slæm lykt úr honum sem leiddi til þess að líkið fannst í plastpoka. Rannsókn bendir til þess að hún hafði þá verið látin í nokkrar vikur. Frá blaðamannafundi um ákærurnar sem haldinn var í dag. AP fréttaveitan segir D4vid lengi hafa verið grunaðan um að hafa myrt Hernandez en rannsóknin hafði að miklu leyti farið fram með töluverðri leynd í formi ákærudómstóls. Það er sérstakt fyrirbæri vestanhafs þar sem meðlimir almennings eru fengnir til að fara yfir gögn mála og ákveða hvort tilefni sé til ákæru. Tónlistarmaðurinn var svo handtekinn í síðustu viku en ákærður í dag. Sjá einnig: D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Í frétt BBC segir að fram hafi komið á blaðamannafundi í dag að rannsóknin hafi verið nokkuð flókin og það sé meðal ástæðna fyrir því að D4vd hafi ekki verið handtekinn fyrr. Hann hefur meðal annars verið ákærður fyrir morð og fyrir að sitja fyrir Hernandez. Þá snýr einn ákæruliðurinn að því að D4vd hafi myrt vitni en þegar Hernandez var myrt stóð yfir rannsókn á því hvort tónlistarmaðurinn hafi brotið á henni. Verði D4vd fundinn sekur gæti hann staðið frammi fyrir dauðadómi en saksóknarar hafa ekki opinberað hvort til standi að sækjast eftir því.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira