ESB umræðan: hver hagnast á því að gefa leikinn áður en hann byrjar? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 21. apríl 2026 11:45 Við getum þakkað fyrir að hafa losað okkur við þá stjórn sem hér ríkti áður. Sú stjórn var þekkt fyrir eitt: að gera ekki neitt — að viðhalda óbreyttu ástandi. Og því halda þau áfram, nú í stjórnarandstöðu, þar sem þau berjast hart með „ekki rökum“ sem segja akkúrat ekki neitt gegn því að þjóðin fái að kjósa um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB — eða réttara sagt, halda þeim áfram. Þau vilja með öðrum orðum gefa leikinn áður en hann hefst. Ekki sjá hvað hægt er að semja um — bara gefast upp með bölsýni og hugafar taparans. En í raun vitum við hvað að baki liggur. Alveg eins og í síðustu kosningum, þegar þjóðin náði þeim árangri að koma frá völdum stjórn sem einkenndist af sérhagsmunum og frændhygli, þá þurfum við að átta okkur á því hvað liggur að baki mótstöðunni sem háð er með hræðsluáróðri og upplýsingaóreiðu. Hvaða annar tilgangur gæti legið þar að baki, ef ekki er vitað hver niðurstaðan verður? Að baki liggur einfaldlega hörð barátta sérhagsmuna sem vilja halda sínu. Þeir vilja viðhalda hér okurvöxtum, okurverði á húsnæði og leigu, okri á matvöru, flutningum, tryggingum og bankakerfi sem sígur til sín eina af hverjum tíu krónum sem um hagkerfið fara. Þannig að spyrjum okkur: hver hagnast? Eða eins og máltækið segir: cui bono? Þar verður afstaðan skýrð og hægt er að horfa framhjá öllu bullinu sem leigupennar og fólk með eigin hagsmuni heldur að okkur alla daga. Við getum meira að segja litið framhjá því að þetta er einfaldlega spurning um lýðræðislegan rétt til að kjósa. Lítum bara á hver hagnast á óbreyttu ástandi — þá verður svarið ljóst. Svo er annar áhugaverður vinkill í þessari umræðu: andstaða þeirra sem lengst til vinstri standa í pólitík. Það er erfitt að átta sig á því af hverju það fólk vill ekki leyfa þjóðinni að kjósa. Hagur þeirra liggur ekki í óbreyttu ástandi — og hvað þá í því að gefast upp fyrirfram og vilja ekki sjá hvað samningur gæti falið í sér. Því hlýtur að liggja að baki einhvers konar ótti — líklegast við kapítalíska hagsmuni innan Evrópusambandsins. En eru okkar eigin kapítalistar betri? Þeir fá að starfa hér við óeðlilega hátt vaxtastig og í umhverfi þar sem fákeppni ríkir á flestum sviðum — aðstæður sem gagnast illa þeim sem vinstri stjórnmál segjast standa með. Þannig að kannski ræður ótti för — ekki gerviótti í þágu sérhagsmuna, heldur hugmyndafræðilegur ótti við það stjórnkerfi sem ESB er. Við eigum ekki að gefast upp áður en leikurinn hefst. Höfundur er stofnandi AIDr. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar