Skoðun

Er ég bara ó­nýtt kolefniseining?

Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar

Get ég selt hvert kíló af vöðvum sem ég bæti á mig á innlendum kolefnismarkaði til að jafna út losun álversins í Straumsvík? Get ég selt ríkinu rétt minn til barneigna, minnkað kolefnissporið mitt, og ríkið selt barnsígildið til olíufursta í nafni loftslagsaðgerðar?

Ef okkar helgustu friðuðu svæði, eins og Þjórsárver sem hafa verið kölluð hjarta hálendisins, sleppa ekki einu sinni við vafasamar framkvæmdir er þá ekki bara tímaspursmál hvenær hjarta mitt verður fært í biðflokk?

Ég gróf sem barn lambið Lilla, sem var með afmyndaða fætur og elskaði að vera klappað, í haganum heima. Hvar get ég fært þessi 3 kíló af kolefni og krútti á skrá fyrir kolefnisjöfnun stórfyrirtækja?

Ef ég endurheimti votlendið í grafreit forfeðra minna hve mörg tonn af kolefni mega evrópsk fyrirtæki básúna út í staðinn?

Þarf ég að endurheimta mýrina í bakgarðinum mínum í leyni, í skjóli nætur, svo kolefnið sem mýrin mun binda verði ekki notað sem réttlæting meiri losunar annars staðar?

Er til of mikils ætlast að eigendur stórfyrirtækja hætti að fá milljarða í arð árlega á kostnað framtíðarkynslóða? Þarf allt að vera góður bissniss og skila sér í vasa þeirra sem menga mest hvort sem er? Er til of mikils mælst að þeir sem hafa völdin og fjármagnið hætti að auka ójöfnuð á kostnað lífvænlegs umhverfis fyrir mannkynið allt?

Vegur réttur minn til framtíðar, náttúrunnar sem ég elska, hreins lofts og næringar, vegur sá réttur svona mikið minna en ársfjórðungslegur hagnaður út í hið óendanlega? Er ég einskis virði utan kolefnisins sem ég bind í líkama mínum? Þarf að græða vindmyllur í lungun og reisa gagnaver á bakinu á mér til að ég fái aðgang að framtíðinni og sæti við borðið?

Ef að krabbamein hagaði sér eins og hagkerfi heimsins í dag væri læknirinn búinn að tilkynna okkur að aðeins nokkrar vikur væru eftir.

Fimm fyrirtæki á íslandi bera ábyrgð á fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands. Þessi fyrirtæki eru Alcoa Fjarðaál, Norðurál, Icelandair, Elkem og Rio Tinto Alcan. Þau losa samanlagt 2,1 milljón tonna af CO2 ígildum. Þetta eru sömu fyrirtækin, fyrir utan Icelandair, sem nota hve mest rafmagn á Íslandi. Meira en 80% raforku sem framleidd er hér á landi er seld til stórnotenda. Markaðurinn kallar sífellt á meira rafmagn, fleiri virkjanir, að náttúru landsins sé fórnað fyrir kílówattsstundir. Og orkan fer að mestu leyti í mengandi iðnað þar sem hagnaðurinn endar í vasa fárra erlendra aðila.

Ég veit ekki með þig en mér finnst þetta dæmi ekki ganga upp. Hvers virði er réttur framtíðarkynslóða til náttúru landsins, til lífvænlegs loftslags, þegar sá réttur er veginn á móti hagnaði stórfyrirtækja? Sem stendur virðist sá réttur vera sem fjöður móti múrsteini á vogarskálunum.

En við getum breytt því og skorið krabbameinið burt. Vilji er allt sem þarf.

Höfundur er jarðeðlisfræðingur að mennt og varaforseti Ungra umhverfissinna




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×