Aðför að einkabílnum hættir? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 21. apríl 2026 13:30 Einkabíllinn er mikilvægt samgöngutæki meirihluta borgarbúa og Flokkur fólksins stendur gegn þeirri aðför sem gerð hefur verið að notkun einkabílsins undanfarin ár. Skipulag samgöngumála í Reykjavík hafa einkennst af rörsýni. Flokkur fólksins hafnar forsjárhyggju, þar sem borgin ætlar að stjórna því hvernig fólk ferðast. Flokkur fólksins ætlar að nýta endurskoðunarákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að koma í veg fyrir fyrirhugaðar þrengingar að einkabílnum á mikilvægum stofnæðum eins og á Suðurlandsbraut. Eins þarf að koma í veg fyrir áform um stórfellda fækkun bílastæða víða í borginni og fjölga þeim á mikilvægum atvinnusvæðum. Þá verður að vinda ofan af flækjustigi og græðgisvæðingu bílastæðakerfisins þar sem bíleigendur eiga erfitt með að fóta sig í frumskógi einkarekinna bílastæða. Þetta verður gert með því að taka til í „app frumskóginum“ og draga til baka óhóflegar hækkanir á gjöldum. Það þarf jafnframt að horfa til aðgengis fyrir alla. Þó margir geti gengið í bílastæðahús og nýtt sér núverandi aðstöðu er staða hreyfihamlaðra og eldri borgara allt önnur. Finna þarf raunhæfar lausnir svo sá aðgangur sem skapaður var með átakinu Römpum borgina nýtist í raun, en ekki aðeins á pappír. Til að bæta umferðarflæðið viljum við innleiða snjallstýrð umferðarljós um alla borg svo fólk bíði ekki að óþörfu á rauðum ljósum á auðum gatnamótum. Í stað þess að fjölga gönguljósum sem tefja umferð á fjölförnum götum viljum við byggja fleiri göngubrýr og undirgöng til að auka öryggi allra vegfarenda og draga þannig úr truflunum. Þá munum við eiga frumkvæði að viðræðum við stóra vinnustaði og skóla um hliðraða til upphafstíma skóla og vinnustaða til að draga úr umferðarteppum á álagstímum morgna og síðdegis. Sveigjanlegar lausnir í umferðarstýringu þurfa einnig að vera til staðar svo hægt sé að færa umferð tímabundið á þann vegarhelming sem er minna nýttur og leysa þannig hraðar úr álagi. Strætó á að vera raunverulegur valkostur fyrir borgarbúa og ein besta kjarabót sem hægt er að ráðast í. Við viljum efla almenningssamgöngur og tryggja að þær standi undir væntingum. Sem liður í því munum við afnema gjaldtöku í almenningsvögnum fyrir börn og ungmenni upp að 18 ára aldri. Á sama tíma verður að horfast í augu við að þeir sem stýrt hafa uppbyggingu Borgarlínu hafa ekki náð að byggja upp nauðsynlegt traust hjá almenningi. Það þarf að breytast ef verkefnið á að njóta stuðnings til framtíðar. Til að bregðast við slysahættu og sjónmengun vegna rafskútna verður að minnka leyfilegan hámarkshraða þeirra á göngugötum og koma upp föstum sleppistöðum víðs vegar um borgina. Stýrt verður með kortagrunni hvar rafskútur geta athafnað sig og ekki verður lengur leyfilegt að skilja þær eftir utan skilgreindra svæða. Flokkur fólksins stendur vörð um Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýrinni og styður byggingu nýrrar flugstöðvar. Ekkert má raska starfsöryggi flugvallarins á meðan ekki er búið að byggja annan og jafn góðan flugvöll annars staðar í nálægð borgarinnar. Flokkur fólksins ætlar að gera borgina hreinni og bæta þannig lýðheilsu með reglulegri hreinsun gatna og draga verulega úr hættulegu svifryki. Við skorum á Reykvíkinga að fylkja liði með okkur. Það er kominn tími til að setja raunverulegar þarfir borgarbúa í fyrsta sæti. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar