„Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. apríl 2026 13:36 Ása er íslensk fyrrverandi eiginkona og barnsmóðir Heuermann. AP/Eduardo Munoz Alvarez Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona raðmorðingjans Rex Heuermann, hefur lýst því hvernig Heuermann játaði loks fyrir henni að hafa orðið átta konum að bana. Þetta kemur fram í nýjum heimildarþætti streymisveitunnar Peacock.
Peacock hefur birt brot úr þættinum The Gilgo Beach Killer: House of Secrets, þar sem Ása lýsir því að Heuermann hafi virst afar taugaóstyrkur þegar hún fór og hitti hann í fangelsinu þar sem hann dvelur nú. „Ég sagði við hann: Jæja, herra Heuermann. Mér skylst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð? Getur þú vinsamlegast sagt mér hversu margar af þessum konum þú myrtir?“ „Átta,“ svaraði Heuermann. Ása sagði eiginmann sinn fyrrverandi hafa tjáð sér að hún hefði verið utan heimilis öll skiptin en áður hefur komið fram að mörg morðanna hafi verið framin á meðan hún var á ferðalögum með börn þeirra. View this post on Instagram A post shared by Peacock (@peacock) Myndskeiði sýnir lögmann Ásu, Bob Macedonio, spyrja hvort einhver fórnarlambanna hafi verið myrt á heimili þeirra í Massapequa Park á Long Island. „Hann sagði já. Þær voru myrtar niðri í herberginu hans, allar nema ein,“ svarar Ása. Það kemur ekki fram í klippunni hvenær Heuermann játaði glæpina fyrir Ásu. Heuermann myrti fórnarlömb sín á árunum 1993 til 2010 en lá ekki undir grun fyrr en 2022. Hann neitaði sök í fyrstu en játaði á dögunum að hafa myrt þær sjö konur sem hann var ákærður fyrir að hafa orðið að bana, og eina til viðbótar. Það vakti mikla athygli og reiði þegar greint var frá því í kjölfar handtöku Heuermann að Peacock, sem er í eigu NBCUniversal, hefði gert samkomulag við fjölskyldu hans um aðkomu þeirra að þáttum um morðin gegn greiðslu.
Bandaríkin Erlend sakamál Gilgo Beach-raðmorðinginn Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira