Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. apríl 2026 07:15 Ása býr enn í húsinu þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði sjö af átta fórnarlömbum sínum. Morðin sjö voru skipulögð en hann myrti eitt fórnarlamba sinna í bifreið sinni, án þess að hafa lagt á ráðin um það fyrirfram. Getty „Það er sótt að mér í draumum mínum hverja nótt. Það mun aldrei hætta. Það mun fylgja mér það sem eftir er ævi minnar,“ segir Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona Rex Heuermann, í lokaþætti þáttaraðarinnar The Gilgo Beach Killer: House of Secrets.
Þátturinn var sýndur í gær en þar greinir Ása frá því að hún búi enn í húsinu þar sem hún bjó með Heuermann og börnum þeirra tveimur. Þá segist hún hafa tekið kjallara hússins í gegn og sofa þar. Heuermann, sem hefur játað að hafa orðið átta konum að bana, myrti sjö þeirra og sundurlimaði í umræddum kjallara. Ása er spurð að því í þættinum hvernig hún útskýri þá ákvörðun sína að flytja í kjallarann, þar sem fórnarlömb eiginmanns hennar mættu endalokum sínum. „Hinn hrottalegi sannleikur er sá að Rex Heuermann segist hafa sundurlimað líkin í þessu herbergi. Það er hinn hrottalegi sannleikur, okei?“ svarar Ása. „Nú er það ég. Ég er í þessu herbergi og ég er hér af því að ég er andlega sinnuð. Ég er að reyna að segja, á minn eigin hátt, að ég harma innilega það sem fórnarlömbin gengu í gegnum.“ Fram kemur í þættinum að Heuermann hafi sett það sem skilyrði fyrir því að játa að hann fengi fyrst að eiga fund með eiginkonu sinni og dóttur, Victoriu, til að játa fyrir þeim. Mæðgurnar reyndu að fá Heuermann til þess að svara því hvers vegna hann hefði myrt konurnar en hann sagði aðeins að „árar hans hefðu náð honum“. Að sögn Victoriu spurði hún hann hvort hann hefði ekki áttað sig á því að konurnar hefðu verið ástvinir fólks sem saknaði þeirra. „Hann svaraði að hann hefði ekki einu sinni upplifað þær sem manneskjur,“ segir Victoria. Heuermann verður dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn þann 17. júní næstkomandi.
Gilgo Beach-raðmorðinginn Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira