Þið eruð bara eins og hlaupár Bjarni Fritzson skrifar 24. apríl 2026 10:01 Í einum af fjölmörgu heimsóknum mínum, í íþróttafélögin síðustu vikur, hitti ég mann sem var greinilega kominn með nóg af sinnuleysi borgarinnar. Þegar ég kynnti mig, greip hann hraustlega í hönd mína og sagði: „Hvað er málið með ykkur stjórnmálafólkið? Þið eruð eins og hlaupár, sjáist aðeins á fjögurra ára fresti. Þið lofið öllu fögru fyrir kosningar en hverfið svo lóðbeint í kokteilboðin í Ráðhúsinu og látið ekki ná í ykkur fyrr en fyrir næstu kosningar.“ „Jah, ég er nú bara að byrja í þessu,“ svaraði ég og átti í mestum vandræðum með að halda aftur af brosinu yfir þessum harðneskjulegu móttökum og líka af því mér fannst nú svolítið til í þessu hjá honum. Við þurfum ekkert annað en að opna samfélagsmiðlana okkar til að sjá frambjóðendur á þeytingi út um alla borg að berjast um athygli borgarbúa. Vopnaðir sparibrosi, þéttu handabandi og fullum vasa af loforðum. Útspil, plön, spretthópar og viljayfirlýsingar eiga það til að flæða úr herbúðum flokka rétt fyrir kosningar, sem reyna þannig að slá ryk í augu kjósenda til að fela aðgerðaleysi sitt allt kjörtímabilið. En eins og ég sagði við þennan góða mann, segi ég við ykkur kæru Reykvíkingar: „Við erum ekki hlaupár! Við erum sleðahundar, sem elska að vinna og við viljum vinna að betri borg fyrir ykkur. Þess vegna erum við ekki með nein innantóm kosningaloforð, heldur verkefnalista sem þið getið fylgst með okkur klára og við munum nota sem einkunnarspjald eftir fjögur ár.“ „Og við munum byrja strax eftir kosningar. Því það er svo margt sem hægt er að gera STRAX!“ Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bjarni Fritzson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Í einum af fjölmörgu heimsóknum mínum, í íþróttafélögin síðustu vikur, hitti ég mann sem var greinilega kominn með nóg af sinnuleysi borgarinnar. Þegar ég kynnti mig, greip hann hraustlega í hönd mína og sagði: „Hvað er málið með ykkur stjórnmálafólkið? Þið eruð eins og hlaupár, sjáist aðeins á fjögurra ára fresti. Þið lofið öllu fögru fyrir kosningar en hverfið svo lóðbeint í kokteilboðin í Ráðhúsinu og látið ekki ná í ykkur fyrr en fyrir næstu kosningar.“ „Jah, ég er nú bara að byrja í þessu,“ svaraði ég og átti í mestum vandræðum með að halda aftur af brosinu yfir þessum harðneskjulegu móttökum og líka af því mér fannst nú svolítið til í þessu hjá honum. Við þurfum ekkert annað en að opna samfélagsmiðlana okkar til að sjá frambjóðendur á þeytingi út um alla borg að berjast um athygli borgarbúa. Vopnaðir sparibrosi, þéttu handabandi og fullum vasa af loforðum. Útspil, plön, spretthópar og viljayfirlýsingar eiga það til að flæða úr herbúðum flokka rétt fyrir kosningar, sem reyna þannig að slá ryk í augu kjósenda til að fela aðgerðaleysi sitt allt kjörtímabilið. En eins og ég sagði við þennan góða mann, segi ég við ykkur kæru Reykvíkingar: „Við erum ekki hlaupár! Við erum sleðahundar, sem elska að vinna og við viljum vinna að betri borg fyrir ykkur. Þess vegna erum við ekki með nein innantóm kosningaloforð, heldur verkefnalista sem þið getið fylgst með okkur klára og við munum nota sem einkunnarspjald eftir fjögur ár.“ „Og við munum byrja strax eftir kosningar. Því það er svo margt sem hægt er að gera STRAX!“ Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar