Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. apríl 2026 20:13 Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðismanna. Vísir/Anton Brink Bæjarstjóri Kópavogs segist ekki örvænta þó ný könnun Maskínu sem gerð var fyrir DV sýni að meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna sé fallinn. Hún segist trúa því að Kópavogsbúar vilji áfram sömu forystu, enda mælist flokkurinn mesta fylgið í bænum. Oddvitar flokkanna sem bæta mestu við sig í Kópavogi segjast sáttir með sitt en útiloka ekkert þegar kemur að meirihlutasamstarfi.
Greint var frá því fyrr í dag að samkvæmt könnunninni er meirihlutinn fallinn þar sem Framsókn myndi missa einn af sínum tveimur bæjarfulltrúum ef gengið yrði til kosninga nú. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðismanna segir enn langt til kosninga. „Þetta er auðvitað bara ein könnunin af mörgum og við Sjálfstæðismenn í Kópavogi vitum svo sannarlega fyrir hvar við stöndum og ég finn það og trúi því að Kópavogsbúar vilji áfram þá forystu sem verið hefur. Það gengur vel og við finnum það og við sjáum það í mælingum. Að mínu mati myndi ég segja að þessar kosningar snúast um það hvort að við ætlum að halda áfram að byggja á þessum góða grunni sem við höfum byggt upp á þessu kjörtímabili.“ „Og þessar kosningar snúast líka um það hverjum íbúar treysta til að stýra áfram okkar frábæra bæ. Og ég verð bara að segja eins og er að við höfum svo sannarlega þorað að framkvæma hluti sem aðrir hafa kannski setið hjá eða jafnvel hafnað í bæjarstjórn Kópavogs. Okkar slagorð Sjálfstæðismanna í Kópavogi er Kópavogur í víðsýni og við trúum því og treystum að það sé það sem Kópavogsbúar vilja og að sjálfsögðu spyrjum við bara að leikslokum.“ Ásdís segir of snemmt að segja til um hverskonar meirihluta verði hægt að mynda að kosningum loknum. Það sé ekki tímabært, kosningarnar snúist um málefnin. „Með hverjum við störfum, það auðvitað er ekki tímabært að ræða enda eru það bara hvaða flokkar verða með áþekkar áherslur og við. Vegna þess að við erum auðvitað að stíga fram með okkar áherslur og íbúar og kjósendur treysta því að við förum eftir þeim áherslum og þá auðvitað verðum við bara að bíða og sjá hvað aðrir flokkar boða. Finni fyrir valdþreytu Oddvitar Samfylkingar og Miðflokks sem bæta mestu við sig í Kópavogi segjast sáttir með sitt. Samfylkingin mælist með 24,5 prósenta fylgi og Miðflokkur ellefu prósent en fyrir fjórum árum fengu flokkarnir átta og þrjú prósent atkvæða. Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingar segir of snemmt að fagna og of snemmt að segja til um mögulega meirihlutamyndanir. „Við finnum fyrir ákveðinni svona valdþreytu hérna í bænum og það er kannski bara eðlilegt. Ég meina, Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið hérna við völd í mjög langan tíma, bara með örstuttum millibilum. Við göngum auðvitað óbundið til kosninga og þegar upp er staðið er hlutverk okkar að mynda meirihluta sem vinnur í þágu bæjarbúa,“ segir Jónas. „Þetta er að mörgu leyti kannski flókin staða og við bara, ja, við ætlum bara að halda augunum á boltanum og einbeita okkur að því að koma okkar skilaboðum fram fyrir til bæjarbúa og bíðum kannski með kapalinn þangað til á kosninganóttinni.“ Einar Jóhannes Guðnason oddviti Miðflokksins tekur í svipaðan streng. „Við þurfum að bíða að leikslokum. Þetta er í svona könnunum, ég held þetta eigi eftir að fara á mikla hreyfingu og ég held að þetta, við munum örugglega sjá margar breytingar frá þessari könnun á kjördegi,“ segir Einar. „En við í Miðflokknum erum bara til í að vinna með hverjum sem er sem er tilbúinn að koma aftur á skynsemi í skipulagsmálum, að hafna núverandi áætlunum um borgarlínu og hætta að þétta svona byggð. Ég held að það sé kannski svona helsta en við auðvitað útilokum ekki neinn. Við bara stöndum, við göngum óbundin til kosninga en göngum bundin við prinsippin okkar.“
Skoðanakannanir Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Lögreglan varar foreldra við „Island Surge VPN“ „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Sjá meira