Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Agnar Már Másson skrifar 26. apríl 2026 11:53 Fólk klæddi sig í eiturefnagalla til þess að heiðra þá 600 þúsund slökkivliðsmanna sem lögðu líf sitt í hættu við að slökkva elda í kjarnorkuverinu í Tsjjernóbil fyrir 40 árum. AP Í dag minnast Úkraínumenn þess að fjörutíu ár eru liðin frá versta kjarnorkuslysi sögunnar, slysinu í Tsjernobyl í Úkraínu, sem þá heyrði undir Sóvétríkin.
Þann 26. apríl 1986 átti að halda æfingu í kjarnorkuverinu í Tsjernóbyl í Kænugarðshéraði í Úkraínu til að kanna hvort kælikerfi kjarnorkuversins virkaði sem skyldi. Við æfinguna kom upp sprenging í kjarnakljúfi númer fjögur og eldurinn breiddist hratt út. Um þrjátíu manns létust í sjálfu slysinu, sem hefði þó getað farið talsvert verr ef ekki hefði verið fyrir starfsmenn kjarnorkuversins sem komust í tæka tíð niður í kjarnakljúf fjögur þar sem þeim tókst þar að draga úr sprengikraftinum. Kertum var stillt upp svo þau líktust hættutákni.AP Um sex hundruð þúsund manns voru látin slökkva elda í kjarnorkuverinu í dögunum sem fylgdi og þar létust tugir manna, samkvæmt opinberum gögnum, en þúsundir til viðbótar eru taldir hafa fengið krabbamein vegna geislunar frá kjarnorkuverinu. Frá því á miðnætti í nótt hafa Úkraínumenn streymt að aðaltorginu í borginni Slavútitsj í Norður-Úkraínu til þess að minnast þeirra sem létust. „Þessi hefð hófst hjá okkur þegar við vorum ung. Í mörg ár höfum við komið á þetta torg á hverju ári til að votta þeim virðingu sem vörðu heiminn fyrir kjarnorkuhamförum,“ segir hin 71 árs Liudmyla Liubyva, í samtali við AP. Eiginmaður Liubyvu vann í kjarnorkuverinu á sínum tíma en nú getur hann ekki gengið vegna veikinda af völdum langvarandi áhrifa af geisluninni, að því er fram kemur í frétt AP. Kveikt á kerti við minnisvarða þeirra sem létust í Tsjernóbyl 1986.AP Slysið leysti úr læðingi mikla geislavirkni sem gaus í andrúmsloftið en stjórnvöld í Sóvétríkjunum upplýstu ekki um slysið fyrr en tveimur dögum síðar þegar vísindamenn í Svíþjóð var farið að gruna eitthvað. Þá hafði geislavirkt ský þegar breist út um Evrópu. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hafði slysið í raun áhrif á um þrjár og hálfa milljón manns og hefur nú gert um 50 þúsund ferkílómetra land geislavirkt. Kjarnorkuslysið er talið það versta í sögunni og er aðeins eitt annað kjarnorkuslys metið af sömu stærðargráðu, þ.e. stærðargráðunni sjö, en það varð í Fúkisjíma í Japan árið 2011. Frá minningarathöfninni í morgun.AP Að undanskildum þeim sem sinna þar vísindastarfi býr enginn í nágrenni við Tsjernóbyl í dag, eða að minnsta kosti ekki löglega, þar sem dvöl er ekki leyfileg innan við 30 kílómetra radíus frá kjarnorkuverinu. Íbúar í Slavútitsj klæddu lögðu kerti við torgið og klæddu sig sumir upp í búninga þeirra eiturefnakafara sem voru látnir slást við eldinn í Tsjernóbyl. Slavútitsj var einmitt byggð undir þá sem þurftu að flýja Tsjernóbyl-svæðið, en í mars 2022 lögðu Rússar tímabundið undir sig borgina en nú eru um fjögur ár liðin frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu. Götulistaverk í Tsjernóbyl.AP Svona lítyr Tsjernóbyl í dag. Þar býr enginn, eða að minnsta kosti ekki löglega, nema vísindamenn og aðrir sem sinna rannsóknum þarna.AP „Þegar dróninn lenti fannst manni eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986. Þess vegna verðum við öll – jafnt ungir sem aldnir – að vernda landið okkar, því það er svo viðkvæmt. Það er aðeins varið af verjendum okkar,“ bætir Liubyva við. Frá athöfninni í mogun og nótt.AP
Tsjernobyl Úkraína Kjarnorka Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Fleiri fréttir Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Sjá meira