Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Valur Páll Eiríksson skrifar 28. apríl 2026 08:31 KR-ingar og Blikar skoruðu fjögur í gær. Vísir/Anton/Diego Mörkum rigndi í regnvotu veðri í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í gær. Alls voru 26 mörk skoruð í fimm leikjum er fjórða umferð deildarinnar kláraðist.
Fram 5-1 ÍBV Atli Þór Jónasson skoraði tvö marka Fram og varnarmennirnir Þorri Þorbjörnsson og Kyle McLagan bættu við auk Kristófers Konráðssonar. Róbert Elís Hlynsson skoraði sárabótamark fyrir ÍBV beint úr aukaspyrnu í fjörlegum stórsigri bláklæddra í Úlfarsárdal. KR 4-2 FH Sama uppskrift og verið hefur hingað til hjá Vesturbæingum. Þeir fá á sig tvö mörk en vinna samt og hefðu getað skorað meira. Aron Sigurðarson skoraði tvö, Eiður Gauti Sæbjörnsson og Amin Cosic sitthvort að auki. Mörk Tómasar Orra Róbertssonar fyrir FH dugðu skammt. Breiðablik 4-0 Þór Ak. Breiðablik hafði aðeins skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjunum og sætt gagnrýni fyrir geldan sóknarleik fram að leiknum við nýliða Þórs. Stíflan brast í gær. Kristófer Ingi Kristinsson, Anton Logi Lúðvíksson, Davíð Ingvarsson og Óli Valur Ómarsson komust á blað. Stjarnan 2-4 Valur Valur komst þrisvar yfir í Garðabænum í gær þar sem Lúkas Logi Heimisson kom þeim fyrst yfir og Tryggvi Hrafn Haraldsson gerði það tvisvar. Bjarni Mark Antonsson skoraði laglegt mark eftir horn til að gulltryggja sigurinn. Andri Rúnar Bjarnason jafnaði tvisvar fyrir Stjörnuna og hefur leiktíðina af krafti fyrir framan markið. Víkingur 4-0 ÍA Elías Már Ómarsson heldur áfram að heilla í Víkinni. Hann skoraði tvö eftir markalausan fyrri hálfleik og er markahæstur í deildinni ásamt Aroni Sigurðarsyni í KR, með fimm mörk. Valdimar Þór Ingimundarson og Viktor Örlygur Andrason settu sitthvort markið í stórsigri meistaranna.
Besta deild karla Fram ÍBV KR FH Breiðablik Þór Akureyri Stjarnan Valur Víkingur Reykjavík ÍA Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira