„Ætlarðu að halda í hugmyndafræðina eða reyna að ná í úrslit?“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2026 15:30 Baldur skildi ekki upplegg FH. FH tapaði fyrir KR í 4. umferð Bestu-deildar karla í gærkvöld og fór leikurinn 4-2. KR-ingar skoruðu fjögur mörk á FH-liðið í fyrri hálfleik. Fimleikafélagið er aðeins með eitt stig eftir fjóra leiki og er útlitið dökkt hjá félaginu. Þeir Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson fóru yfir leik liðsins í Stúkunni á Sýn Sport í gær.
FH tapaði fyrir KR í 4. umferð Bestu-deildar karla í gærkvöld og fór leikurinn 4-2. KR-ingar skoruðu fjögur mörk á FH-liðið í fyrri hálfleik. Fimleikafélagið er aðeins með eitt stig eftir fjóra leiki og er útlitið dökkt hjá félaginu. Þeir Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson fóru yfir leik liðsins í Stúkunni á Sýn Sport í gær. „Ég held við höfum bara séð upplegg sem var á þá leið að setja þetta bara upp í hendurnar á KR-ingum. Það er óvanalegt að sjá lið koma á móti KR og byrja betur. FH gerði það í dag. Það var hörkukraftur í þeim og þeir fá færi eftir örfáar sekúndur og þeir voru grimmir,“ segir Baldur og heldur áfram. „En svo sáum við bara strax að þetta er gríðarlega mikið verkefni fyrir Jóa Kalla. Það er þetta hápressuverkefni sem hann er í og það er bara komið allt of stutt til þess að þú getir farið í Vesturbæinn og reynt að pressa KR. Svo þarf hann líka að breyta vörninni. Fyrir mér er þetta kolvitlaust upplegg en það er síðan spurningin. Ætlarðu að halda í hugmyndafræðina eða reyna að ná í úrslit? Þetta var klárlega ekki eitthvað til þess að ná í úrslit eins og við sáum.“ Bróðir Jóa Kalla, Bjarni Guðjónsson, tók þá næst til máls. „Við horfðum á KR í fyrra gera nákvæmlega sömu hluti og KR-ingar voru að býsnast yfir þessu, leik eftir leik eftir leik. Hversu lengi eigum við eftir að horfa á þetta? Markmanninn hátt, tapa leikjum, vera alltaf mikið með boltann, skora ekki neitt, skapa ekki neitt og tapa leikjum. Hugmyndafræðin lifði það af.“ Klippa: Ræddu upplegg FH gegn KR
Besta deild karla FH Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Glænýtt gólf fyrir fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Ólíver: „Mjög mikill heiður“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Dagskráin í dag: Félagar Amin Cosic geta sett annan fótinn í Meistaradeildina Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Setti tvö heimsmet á sama deginum Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Sjá meira