Fótbolti

Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo hefur ekki verið á skotskónum í síðustu leikjum.
Cristiano Ronaldo hefur ekki verið á skotskónum í síðustu leikjum. Getty/Abdullah Ahmed

Cristiano Ronaldo var ekki meðal markaskorara Al Nassr í 3-1 útisigri á Al Faisaly í sádíarabísku deildinni í kvöld.

Ronaldo kom reyndar boltanum í markið á 52. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Hann fagnaði líka marki þremur mínútum fyrr þegar hann taldi sig hafa skallað boltann í markið en það mark var skráð sjálfsmark. Heppnin var því ekki með honum í kvöld.

Ronaldo skoraði ekki heldur í leiknum á undan þar sem hann klikkaði á vítaspyrnu. Al Nassr vann báða leikina.

Ronaldo skoraði í tveimur fyrstu leikjunum eftir að hann yfirgaf herbúðir portúgalska landsliðsins í miðjum glugga en hefur ekki náð að skora eftir að hann var settur í þrjátíu daga bann af portúgalska sambandinu.

Al Nassr er í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig en Ronaldo er aðeins í átjánda sæti yfir markahæstu menn með fjögur mörk.

Ronaldo er að reyna að ná að skora þúsund mörk á ferlinum en hann er kominn með 981 mark og vantar bara nítján mörk til að ná því sögulega afreki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×