Fjármagn í þágu fjölskyldna Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 28. apríl 2026 15:03 Slagorð Flokks fólksins er einfalt en skýrt: FÓLKIÐ FYRST SVO ALLT HITT. Við viljum að öllum líði vel í borginni okkar, að allir geti fundið til öryggis og þurfi ekki að kvíða morgundeginum. Borgin verður að styðja betur við barnafjölskyldur sérstaklega viðkvæma hópa sem lent hafa neðarlega í forgangsröðunina. Fátækt hefur aukist og með versnandi stöðu margra fjölskyldna og þannig eykst vanlíðan og kvíði. Flokkur fólksins ætlar að breyta þessu. Borgin er fjárhagslega öflugasta sveitarfélag landsins en fjármunum hennar hefur einfaldlega verið deilt út með röngum hætti. Milljörðum hefur verið sóað í óþarfa framkvæmdir og bruðl á meðan skóla- og frístundasvið rær lífróður. Ef við fáum umboð borgarbúa í komandi kosningum munum við færa fjármagn frá gæluverkefnum yfir til grunnþjónustu við fjölskyldur og börn. Það er brýnt að grípa til aðgerða í leikskólamálum. Það ríkir óráðsía og ævintýramennska í byggingu leikskóla sem verður að stöðva. Flokkur fólksins ætlar að tryggja öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Til að brúa bilið fyrir þau sem bíða ætlum við að taka upp heimgreiðslur til foreldra. Við munum einnig grípa til hagkvæmra bráðalausna, til dæmis með einingahúsum. Flokkur fólksins styður einnig að fyrirtæki geti boðið starfsfólki sínu upp á daggæslu eða leikskóla. Leikskólann þarf samt að hugsa fyrst og fremst um andelga heilsu barna og svo bætt starfsumhverfi fyrir starfsfólk áður en lengra verður haldið. Góð menntun og með áherslum á velferð skipta sköpum í grunnskólum borgarinnar. Flokkur fólksins leggur höfuðáherslu á að stórefla lestrargetu nemenda og veita kennurum stuðning til að beita árangursríkum kennsluaðferðum eins og Kveikjum neistann. En skólinn snýst um meira en lestur. Ekkert barn á að þurfa að bíða í marga mánuði og jafnvel ár eftir mikilvægum greiningum. Tryggja verður mun hraðari aðgang að greiningarferli og létta undir með foreldrum barna með fjölþættan vanda. Meðal annars með því að láta farsældarlögin virka í raun og tryggja hverri fjölskyldu sinn eigin tengilið í kerfinu. Við í Flokki fólksins gerum einnig ríka kröfu um að börnin fái hollan og næringarríkan mat í skólanum. Þess vegna ætlum við binda enda á útvistun skólamáltíða til einkafyrirtækja sem hámarka gróða sinn á kostnað gæða. Grunnskólar í Reykjavík eiga að reka sín eigin eldhús og þar sem matur er eldaður frá grunni. Þá verður að tryggja jafnt aðgengi allra barna að íþrótta- og frístundastarfi, ekkert barn á að vera út undan vegna efnahags. Flokkur fólksins hefur alltaf beitt sér sérstaklega í þágu hinna verst settu. Þjónusta borgarinnar verður að ná til efnaminnstu barnafjölskyldnanna. Það er til dæmis forgangsmál að hækka grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar. Annað verður að bíða á meðan við tryggjum fæði, klæði, húsnæði og velferð barna okkar. Fólkið fyrst svo allt hitt. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar