Lífið

Fögnuðu nýrri líkams­ræktar­stöð í Gríms­bæ

Lovísa Arnardóttir skrifar
Frá opnun stúdíósins. Eigandi Iðu, Valgerður Tryggvadóttir, er önnur frá hægri.
Frá opnun stúdíósins. Eigandi Iðu, Valgerður Tryggvadóttir, er önnur frá hægri. Aðsend

Hverfiskjarninn Grímsbær gengur þessa dagana í gegnum endurnýjun lífdaga. Í gær, 1. maí, héldu opnunarteitin í Grímsbæ áfram þegar ný líkamsræktarstöð, Stúdíó Iða, fagnaði því að vera að hefja starfsemi í kjarnanum. 

Þar opnuðu hjónin Auðunn Blöndal og Rakel Þormarsdóttur einnig nýlega veitingastaðinn Fossinn en auk þess opnaði bakaríið Hygge þar síðastliðið haust. 

Það er hægt að sitja og leika fyrir utan. Aðsend

Valgerður Tryggvadóttir, stofnandi Stúdíó Iðu, er sjúkraþjálfari og hefur þjálfað mömmutíma sem brátt munu hefja göngu sína í þessu nýja húsnæði í Fossvoginum.

Gestir spenntir. Aðsend
Gestir ánægðir með æfingahjólin og leiksvæðið á gólfinu. Aðsend
Veðurblíða við opnun. Aðsend

Tengdar fréttir

Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og konan hans Rakel Þormarsdóttir hafa valið nafn fyrir veitingastaðinn sem þau opna á næstunni á neðri hæð verslunarkjarnans Grímsbæjar í Reykjavík. Staðurinn heitir Fossinn, væntanlega með vísan í Fossvoginn, og þau eru nú í leit að starfsfólki til að taka á móti gestum og til starfa í eldhúsi staðarins.

Veipverslun fyllir í skarð veitingastaðar

Veipveldið Póló hefur opnað verslun í verslunarkjarna við Hagamel í Vesturbænum í Reykjavík sem löngum var kallaður Úlfarsfell eftir samnefndri bókabúð. Taílenskur veitingastaður hefur verið í húsinu um árabil.

Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig

Eigendur bakarísins Hygge við Barónsstíg hafa enn ekki fengið rekstrarleyfi afhent en 231 dagur er síðan þeir lögðu fram umsókn. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði veltir því fyrir sér hvort ákvörðun þeirra um að ræða mál sitt opinberlega hafi orðið þeim að falli. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.