Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 12:47 Richie Wellens, sem hóf leikmannsferil sinn hjá gullaldarliði Manchester United um aldamótin, var foxillur þrátt fyrir að hafa forðast fall um helgina. Getty/Lee Parker Þó að Leyton Orient slyppi við fall úr ensku C-deildinni í fótbolta um helgina var stjóri liðsins, Richie Wellens, æfur út í leikmenn sína og hellti úr skálum reiði sinnar í viðtali eftir leik.
Leyton gerði 2-2 jafntefli við Burton Albion í lokaumferð C-deildarinnar og endaði þremur stigum fyrir ofan Exeter City sem féll eftir 2-1 tap gegn Bradford á sama tíma. Það mætti því halda að Wellens og hans menn hefðu haft ærna ástæðu til að fagna en eins og sjá má hér að neðan var stjórinn hundóánægður og fannst lið sitt eiga að sækja til sigurs, til að þurfa ekki að treysta á önnur úrslit. Veikgeðja hópur sem fallfnykur var af „Það var til skammar hvernig við gerðum þetta síðustu 15 mínúturnar, sendandi boltann á milli í vörninni. Við vildum ekki vinna leikinn. Það er aldrei að vita hvað gerist í fótbolta. Exeter hefði getað skorað tvö mörk á mínútu. Þetta sýnir hvernig hóp við erum með,“ sagði Wellens og var hvergi nærri hættur. „Við erum með veikgeðja hóp. Mjög, mjög veikgeðja. Það var stækur fallfnykur af okkur og við þurftum að bíða eftir úrslitum hjá öðrum liðum. Við fáum enn á ný á okkur mark úr föstu leikatriði því það vantar leiðtogahæfni,“ sagði Wellens. "Get off the pitch, it's been an embarrassing season" 😡Leyton Orient boss Richie Wellens was angry at his players for celebrating avoiding relegation on the final day. pic.twitter.com/ecUXXx7V5D— Sky Sports News (@SkySportsNews) May 3, 2026 „Ég sagði þeim að klappa fyrir stuðningsmönnunum því að þeir eiga það skilið. Þeir hafa borgað sig inn á leiki alla leiktíðina, á heima- og útivelli, og eiga skilið klapp. En ekki fara svo og fagna með fjölskyldum ykkur. Farið af vellinum. Þetta tímabil hefur verið til skammar,“ sagði Wellens og kenndi svo leikmönnum um að láta heilt tímabil hreinlega fara til spillis. „Of margir leikmenn hafa sóað tíu mánuðum af sínum ferli. Sóað mínum tíma. Það er búið að sóa heilu ári af mínum þjálfaraferli. Þeir hafa líka sóað tíma stuðningsmanna. Þeir hafa ekki fengið nógu marga góða daga,“ sagði Wellens sem komst með Leyton í úrslitaleik umspils um sæti í B-deild fyrir ári síðan. Þar tapaði liðið 1-0 gegn Charlton á Wembley.
Enski boltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira