Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 14:45 Brentford vann Liverpool í lok október en mögulega gæti það borgað sig fyrir Brentford að tapa í lokaumferðinni. Getty/Ryan Pierse Ansi furðuleg staða gæti komið upp í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta því mögulega gæti Brentford eða Brighton þá komið sér í Meistaradeild Evrópu með því að tapa leik.
Þessi staða gæti komið upp ef og aðeins ef að Aston Villa vinnur Evrópudeildina en liðið er þar 1-0 undir í undanúrslitum gegn Nottingham Forest fyrir heimaleik sinn á fimmtudaginn. Ef að Villa vinnur Evrópudeildina og hafnar í 5. sæti mun liðið í 6. sæti úrvalsdeildarinnar komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Þetta gildir ekki ef að Villa endar í 3. eða 4. sæti úrvalsdeildarinnar heldur aðeins ef liðið endar í 5. sætinu. Það þýðir að Brentford eða Brighton gæti mögulega grætt á því að tapa í lokaumferðinni, fyrir Liverpool eða Manchester United, til að tryggja að Villa komist ekki upp fyrir annað þeirra. Til dæmis gæti Brentford verið komið í 6. sæti, fjórum stigum á undan næsta liði, og þannig haft efni á að tapa fyrir Liverpool án þess að missa 6. sætið. Með því að tapa gæti liðið svo mögulega tryggt að Villa endi fyrir neðan Liverpool, í 5. sæti, og þannig kæmist Brentford í Meistaradeildina í stað Evrópudeildarinnar. Standings provided by Sofascore Þessi flókna staða er tilkomin vegna þess að UEFA veitir sigurvegurum Evrópudeildarinnar sæti í Meistaradeild Evrópu og jafnframt tveimur deildum sérstakt aukasæti í Meistaradeild Evrópu, sem byggist á árangri landanna í Evrópukeppnunum leiktíðina á undan. Enska úrvalsdeildin á örugg fjögur sæti í Meistaradeildinni en hefur nú þegar tryggt sér eitt aukasæti með árangri ensku liðanna í vetur. Þó að það sé kannski ekki líklegt að lið muni hagnast á að tapa í lokaumferðinni eru hins vegar ágætar líkur á að Villa vinni Evrópudeildina og endi í 5. sæti úrvalsdeildarinnar, og að 6. sæti dugi þá til að komast í Meistaradeild Evrópu. Því horfa sjálfsagt mörg lið til þess enda stutt frá Bournemouth, sem er í 6. sæti, í næstu lið.
Enski boltinn Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira