Verðmetið á yfir tíu milljarða þegar fjárfestar keyptu helmingshlut í Algalíf
Þegar hópur innlendra fjárfesta, leiddur af framtakssjóðnum Aldir ásamt meðal annars viðskiptafélögunum Andra og Birgi Má, festi kaup á stórum hlut í Algalíf á Reykjanesi á haustmánuðum síðasta árs þá var hlutafé líftæknifyrirtækisins verðmetið á meira en tíu milljarða í viðskiptunum.
Tengdar fréttir
Algalíf skráð á markað eftir tvö ár
Líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á skráningu á markað 2025. Þá var Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri og einn eiganda ráðgjafafyrirtækisins Hamrar Capital Partners, kjörinn stjórnarformaður Algalífs.
Dropp metið á nærri tvo milljarða þegar sjóðurinn Aldir keypti ráðandi hlut
Fyrirtækið Dropp, sem hefur stækkað hratt undanfarin ár og sérhæfir sig í sendingarþjónustu fyrir netverslanir, var verðmetið á hátt í tvo milljarða króna þegar hinn nýlega stofnaði framtakssjóður Aldir stóð að kaupum á ráðandi eignarhlut í félaginu seint á árinu 2024. Helstu hluthafar sjóðsins, sem fjárfesti í tveimur félögum á liðnu ári, eru lífeyrissjóðir – LSR þar stærstur – og fjárfestingafélög Heiðars Guðjónssonar og viðskiptafélaganna Andra Sveinssonar og Birgis Más Ragnarssonar, en þeir eru jafnframt meðal eigenda rekstrarfélagsins.