AGS segir skuldastöðu ríkja þrýsta upp langtímavöxtum
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að vaxandi áhyggjur fjárfesta af mikilli skuldsetningu ríkja eigi þátt í þeirri skörpu hækkun sem orðið hefur á langtímavöxtum á helstu skuldabréfamörkuðum beggja vegna Atlantshafsins. Þrátt fyrir snarpar verðhreyfingar að undanförnu sér sjóðurinn þó ekki merki um óskipuleg viðskipti eða alvarlega röskun á virkni markaðanna.
Tengdar fréttir
Stöðugleiki í vaxtaþróun langra ríkisbréfa merki um „seiglu“ íslenska markaðarins
Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá sumum ríkjum.
Markaðurinn vanmetið gjaldeyrisinnflæðið af uppbyggingu gagnavera
Peningastefnan er að hjálpa við að draga úr vexti einkaneyslu og fjárfestingu, sem veldur minni innflutningi á sama tíma viðskiptakjör útflutningsgreina eru góð, en það hefur ýtt undir mikla gengisstyrkingu á krónunni og þá er líklegt að markaðurinn hafi vanmetið gjaldeyrisáhrifin af stórfelldri uppbyggingu gagnavera, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur bankakerfið hafa búið vel í haginn til að takast á við óróleika á erlendum mörkuðum og það fyrirfinnist vart fyrirtæki sem er mjög skuldsett í erlendri mynt og gæti lent í vandræðum vegna endurfjármögnunar í útlöndum.
AGS og gengismálin: Enn er verk að vinna
Þótt besta leiðin til að takast á við slíkt ójafnvægi sé að laga undirliggjandi veikleika í innlendri efnahagsstefnu þýðir það ekki að mat á of- eða vanmati gjaldmiðla hafi ekki mikilvægt upplýsingagildi. Það verður ekki nægilega undirstrikað að renminbi er gjaldmiðill sem kínversk stjórnvöld stýra með mjög virkum hætti.
Tíu ára raunvextir orðnir nær þeir sömu og í Bandaríkjunum
Raunvaxtamunur Íslands gagnvart Bandaríkjunum hefur minnkað hratt á undanförnum mánuðum og er nú svo komið að raunvextir til tíu ára eru nánast þeir sömu í löndunum tveimur. Þróunin, sem skýrist bæði af þrálátri verðbólgu hér heima og hækkandi langtímavöxtum erlendis, getur dregið úr hlutfallslegu aðdráttarafli íslenskra eigna þrátt fyrir háa stýrivexti.