Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2026 12:01 Nathan Chasing Horse í dómsal í janúar. AP/Ty ONeil Nathan Chasing Horse, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið hinn unga Smiles A Lot í kvikmyndinni Dansar við úlfa, frá 1990, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann var dæmdur fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn bæði konum og stúlkum yfir margra ára tímabil og í tengslum við sértrúarsöfnuð sem hann myndaði.
Chasing Horse fæddist í Suður-Dakóta og tilheyrði Sicangu Sioux-ættbálknum, sem er hluti Lakota-þjóðarinnar. Leikarinn fyrrverandi, sem er 49 ára gamall, er sagður hafa nýtt sér frægð sína eftir að hafa leikið í Óskarsverðlaunamyndinni áðurnefndu til að taka sér stöðu andlegs leiðtoga og heilara í samfélagi innfæddra í Bandaríkjunum. Þá stöðu mun hann svo hafa nýtt sér til að brjóta á konum og stúlkum í þessu samfélagi yfir rúmlega tveggja áratuga tímabil. Hann var meðal annars sakaður um að hafa tekið sig upp hafa mök við fjórtán ára stúlku. Hann var því ákærður fyrir að framleiða og eiga barnaníðsefni en nauðgunin átti sér stað árið 2010 eða 2011. Segist enn saklaus Í dómsal í Las Vegas í lok apríl þegar hann var dæmdur sagðist Chasing Horse saklaus og sagði réttarkerfið hafa brugðist. Hann var eins og áður segir dæmdur í lífstíðarfangelsi og mun fyrst eiga rétt á reynslulausn eftir 37 ár. Málaferlin gegn Chasing Horse hafa staðið yfir í nokkur ár en hann var fyrst handtekinn og ákærður árið 2023. Hann hefur einnig verið ákærður fyrir brot gegn konum í Kanada og stendur til að rétta einnig yfir honum þar. Sagði andana krefjast meydóms fjórtán ára stúlku Saksóknarar segja Chasing Horse hafa leitt sértrúarsöfnuð sem kallaðist Hringurinn, eða The Circle, og að fylgjendur hans hafi talið hann geta átt í samskiptum við anda. Margir eru sagðir hafa leitað til hans eftir hjálp við að bæta úr heilsu sinni. Þegar hann var handtekinn í Las Vegas árið 2023 bjó hann í húsi með fimm eiginkonum. Þar fannst svo upptaka af áðurnefndri nauðgun á ungu stúlkunni en þá var hún orðin ein af eiginkonum Chasing Horse. Við réttarhöldin gegn Chasing Horse sögðu nokkur fórnarlömb hans frá því þegar hann braut á þeim en í einu tilfelli sagði saksóknari frá því þegar Leone-LaCroix var fjórtán ára gömul. Þá sagði Chasing Horse henni að andarnir krefðust þess að hún fórnaði meydómi sínum til að bjarga móður sinni, sem hafði þá nýlega greinst með krabbamein. Stúlkan sagði rannsakendum að hann hefði nauðgað sér og sagt að ef hún segði einhverjum frá myndi móðir hennar deyja, eins og fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar. Fórnarlömb Chasing Horse og fjölskyldumeðlimir þeirra sögðust hafa átt í miklum erfiðleikum eftir samskipti þeirra við hann. Hann hafi brotið gegn trausti þeirra og misnotað fornar og helgar hefðir innfæddra Bandaríkjamanna.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira