Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Kjartan Kjartansson skrifar 6. maí 2026 09:02 Mette Frederiksen (t.h.) og Lars Løkke Rasmussen (t.v.) reyna nú að klambra saman ríkisstjórn í Danmörku. Um einn og hálfur mánuður er frá þingkosningunum og stefnir í að stjórnarmyndunarviðræðurnar verði þær lengstu í danskri samtímasögu. Vísir/EPA Enn bólar ekkert á nýrri ríkisstjórn í Danmörku eftir þingkosningar sem voru haldnar í mars. Allt stefnir í að stjórnarmyndunarviðræðurnar nú verði þær lengstu í sögunni.
Fjörutíu og þrír dagur eru í dag liðnir frá þingkosningunum í Danmörku. Lítið er enn að frétta af stjórnarmyndun. Mette Frederiksen, starfandi forsætisráðherra og leiðtogi jafnaðarmanna, sem fer með stjórnarmyndunarumboðið hefur undanfarna daga aðeins fundað með Lars Løkke Rasmussen, leiðtoga Moderaterna. Hvorki fulltrúum Sósíalíska þjóðarflokksins, Róttæka vinstriflokksins, Einingarlistans né Valkostsins hefur verið boðið til viðræðna Frederiksen og Rasmussen en þeir hafa verið tíðir gestir á fundum Frederiksen undanfarið. Fyrra met yfir lengstu stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku var sett eftir síðustu þingkosningar árið 2022. Þá tilkynnti Frederiksen um nýtt stjórnarráð sitt 42 dögum eftir kosningar. Ríkisstjórnin var þó ekki formlega mynduð fyrr en að 44 dögum liðnum. Mikið ber á milli Nær öruggt er nú að það met verði slegið. Pia Olsen Dyhr, leiðtogi Sósíalíska þjóðarflokksins, skrifaði á samfélagsmiðli að það væri hæpið að ríkisstjórn yrði mynduð í þessari viku. Í sömu færslu sagði Olsen Dyhr ástæðuna fyrst og fremst pólitískan ágreining. Langt sé á milli Rasmussen annars vegar og Einingarlistans, bandalags vinstri umhverfisflokka, hins vegar. Rasmussen, sem er í oddastöðu við stjórnarmyndun, hefur talað fyrir ríkisstjórn yfir miðjuna. Hægri flokkunum hefur hins vegar ekki hugnast að vinna með Frederiksen og jafnaðarmönnum.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira