Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. maí 2026 21:37 Giorgia Meloni er forsætisráðherra Ítalíu. EPA Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, deildi djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri fáklæddri til að vekja athygli á hættum gervigreindarinnar. „
Þessa dagana hefur fjöldi falskra ljósmynda af mér verið dreift, búnar til með gervigreind og sagðar vera raunverulegar af ötulum andstæðingi mínum,“ skrifar Meloni í færslu á samfélagsmiðlinum X. Með færslunni lætur hún fylgja mynd, svokallaða djúpfölsun búna til af gervigreind, þar sem hún er látin sitja fyrir á nærfötunum. „Ég verð að viðurkenna að sá sem bjó þær til, að minnsta kosti þessa sem fylgir með, hefur bætt mig töluvert. En staðreyndin er sú að allt er notað til að ráðast á og búa til falsanir,“ segir Meloni. Hún ítrekar hversu hættulegt tól djúpfalsanir eru og að slíkar myndir geti gabbað hvern sem er. Meloni ráðleggur öllum að sannreyna allt sem þau sjá á netinu áður en þau trúa því og gera það áður en myndum líkt og þessum er deilt. Girano in questi giorni diverse mie foto false, generate con l’intelligenza artificiale e spacciate per vere da qualche solerte oppositore.Devo riconoscere che chi le ha realizzate, almeno nel caso in allegato, mi ha anche migliorata parecchio. Ma resta il fatto che, pur di… pic.twitter.com/or44qru2qj— Giorgia Meloni (@GiorgiaMeloni) May 5, 2026 „Ég get varið mig. Margir aðrir geta það ekki,“ segir hún. „Í dag gerist þetta við mig, á morgun getur þetta gerst við hvern sem er.“ Djúpfalsaðar myndir og myndskeið eru búin til með því að taka andlit annarra, oft frægra einstaklinga, og setja á líkama annarra. Myndirnar og myndskeiðin geta litið afar raunverulega út og sýna oft einstaklingana fáklædda. Fjöldi slíkra mynda hefur verið búinn til á samfélagsmiðlinum X af gervigreindinni Grok. Oftast voru konur hlutgerðar á þennan máta. Franskir saksóknarar telja að Elon Musk, eigandi X og ríkasti maður heims, hafi hvatt til þess að gervigreindin yrði notuð til að búa til kynferðislegar djúpfalsanir.
Gervigreind Ítalía Stafrænt ofbeldi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira