Grinda­vík - Tinda­stóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri

Árni Jóhannsson skrifar
Ólafur Ólafsson var frábær fyrir Grindvíkinga í kvöld.
Ólafur Ólafsson var frábær fyrir Grindvíkinga í kvöld. vísir/Guðmundur

Grindavík er komin í 1-0 í einvíginu við Tindastól um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta eftir 85-80 sigur á heimavelli í kvöld. Grunnurinn var lagður með frábærum fyrri hálfleik.

Varnarleikur Grindavíkur var til fyrirmyndar.Vísir / Guðmundur

Grindvíkingar, með Ólaf Ólafsson í miklu stuði, voru 49-34 yfir í hálfleik og lengst af leit út fyrir nokkuð þægilegan sigur þeirra. 

Í blálokin gafst Stólunum þó tækifæri til að jafna metin, eftir óíþróttamannslega villu Kristófers Breka Gylfasonar, en Ólafur varði þriggja stiga skot Péturs Rúnars Birgissonar.

Liðin mætast næst á Sauðárkróki á þriðjudagskvöld.

Drungilas og Semple í einni af mörgum bardögum í kvöld.Vísir / Guðmundur

Yfirburðir Grindavíkur í fyrri hálfleik voru algjörir

Liðin byrjuðu jafnt en Grindavík tók fyrst við sér og maður lifandi hvað þeir litu vel út í fyrri hálfleik. Staðan var 2-4 þegar um mínúta var liðin af leiknum en Grindavík skoraði næstu 12 stig og staðan 14-4 þegar um þrjár mínútur voru liðnar. Grindavík var að hlaupa inn í sendingarlínur Stólanna trekk í trekk og fengu stig á móti. Það varð til þess að Arnar Guðjónsson þurfti að taka leikhlé þegar 6:28 voru eftir af fyrsta leikhlutanum. 

Óli og Taiwo í hörkubaráttu.Vísir / Guðmundur

Það gekk ekki upp og Grindavík hélt áfram að berja á Stólunum og voru komnir í 24-9 þegar um tvær mínútur voru eftir af fyrsta leikhlutanum. Stólarnir tóku þá loksins við sér og skoruðu níu stig á móti fjórum og staðan 28-18 eftir fyrstu 10 mínúturnar. 

Leikurinn varð jafnari í öðrum leikhluta og liðin skiptust á körfum. Það hentaði Grindvíkingum ágætlega og Stólarnir náðu ekki að toga heimamenn nær sér. Allt í einu sprungu Grindvíkingar aftur út og munurinn fór úr 10 stigum upp í 16 þegar annar leikhlutinn var hálfnaður. Ólafur Ólafsson setti niður tvo þrista í röð og allt bilaðist í húsinu og leikhlé var tekið.

Breki að negla niður.Vísir / Guðmundur

Aftur gerðist ekkert eftir leikhlé Tindastólanna og Grindavík keyrði muninn upp í 19 stig og þetta leit út fyrir að vera búið bara fyrir Stólana. Grindavík virtust þá slaka örlítið á, mögulega haldandi eins og undirritaður að þetta væri komið, Tindastóll lagaði muninn aðeins. Heimamenn náðu þó að halda muninum góðum og staða 49-34.

Tindastóll sló frá sér í seinni hálfleik

Kane gekk ekki vel af vítalínunni en slapp með það.Vísir / Guðmundur

Tindastóll hafði hitt tveimur af 15 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleik og það sagði sína sögu. Tindastóll kom út af fítons krafti og fóru að finna lausnir á mögnuðum varnarleik heimamanna. Grindavík fann samt körfur en munurinn alltaf í kringum 10 stigin. Þangað til að þrír þristar í röð rötuðu heim frá Tindastól. Munurinn fór niður í sex stig, 59-53 þegar sex mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta og það fór að hljóðna í stuðningsmönnum Grindavíkur. Stuðningsmenn Tindastóls hækkuðu í sér heldur betur og leikmenn þeirra fundu ástina.

Tindastóll hélt áfram og náði forskotinu 59-60 og þá leit það hreint út sagt að Grindavík væri búið ða ljúka leik hér í kvöld. Jeremy Pargo náði að skora og Grindavík tók við sér og náði að halda sjó. Leikhlutinn endaði 62-60 og allt í járnum í Grindavík.

Fjórði leikhluti hefði ekki getað byrjað betur fyrir heimamenn. Þeir skoruðu sjö stig í röð. Svo svaraði Tindastóll en Grindavík keyrði muninn upp aftur í níu stig og þar var varnarleikurinn sem tók aftur við sér og hittni Stólanna kólnaði svo um munaði.

Basile átti flottan leik en var oft stoppaður af.Vísir / Guðmundur

Grindavík nýtti sér það og náði muninum upp í 14 stig 78-64. Aftur hélt maður að þetta væri komið en Stólarnir gefast ekki svo glatt upp. Grindavík hitti illa af vítalínunni og það gátu gestirnir nýtt sér. Þeir byrjuðu að naga niður forskotið og þegar mínúta var eftir þá var staðan 83-74. 

Unnsteinn Rúnar Kárason setti tvo risa þrista og spilaði flotta vörn.Vísir / Guðmundur

Grindavík gat hreinlega ekki keypt sér körfu á lokamínútunni og Tindastóll náði að minnka muninn í þrjú stig þegar um 20 sekúndur voru eftir af leiknum. Stólarnir teiknuðu upp kerfi til að reyna að jafna metin en Óli Óla varði þriggja stiga skotið. Þá voru fimm sekúndur eftir og Grindavík fór nokkrum sinnum á vítalínuna en Grindavík náði ekki að setja niður vítin en náðu í sóknarfráköst til að koma sér aftur á línuna. Jeremy Pargo náði loksins að setja niður víti og koma muninum upp í fimm stig, 85-80, þegar 2 sekúndur voru eftir og Tindastóll náði ekki að klóra meira í bakkann.

Jeremy Pargo átti flottan leik og dró sína menn áfram þegar á þurfti að halda.Vísir / Guðmundur

Grindavík er því komið í forystu í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. 

Atvik leiksins

Þegar Ólafur Ólafsson varði þriggja stiga skotið sem hefði mögulega jafnað metin. Þar með var vonin orði lítil sem engin fyrir Stólana.

Stjörnur og skúrkar

Ólafur Ólafsson var stigahæstur og framlagshæstur hjá heimamönnum í kvöld. Það voru samt margir sem lögðu hönd á plóg og því gat Grindavík sótt sigurinn.Hjá Stólunum voru margir skúrkar í fyrri hálfleik. Þeir tóku að bjarga andlitinu í seinni hálfleik en Badmus og Basile voru stigahæstir. Sá fyrrnefndi skoraði 22 stig og seinni 19 stig. Davis Geks skoraði núll stig og það sem meira er reyndi hann bara fjögur skot í dag. Hann fékk úr mjög litlu að moða.Umgjörð og stemmning

Badmus spilaði vel á köflum.Vísir / Guðmundur

Stemmningin hér í HS orku höllinn var gjörsamlega sturluðu. Umgjörðin flott og allt til alls.

Grindvíkingar gulir og glaðir.Vísir / Guðmundur

Dómarar

Þetta var mjög erfiður leikur að dæma. Margir dómar sem hefðu getað verið öðruvísi og skrýtnir. Ekki hallaði á liðin en þetta hefði getað verið betra.

Viðtöl:

Sigtryggur: Ég er heill

Sigtryggur og Adomas náðu ekki að koma sínum mönnum yfir línuna.Vísir / Guðmundur

Sigtryggur Arnar Björnsson virtist geta beitt sér í leiknum í dag en hafði ekki erindi sem erfiði. Hvað var munurinn á hálfleikjunum hjá Tindastól?

„Við vorum bara hikandi í fyrri hálfleik. Við vorum bara ekki vissir hvað átti að gera á móti skiptivörninni. Komumst sjaldan inn í teiginn og það var bara mikið hik og orkuleysi. Í seinni sóttum við meira á körfuna og hreyfðum okkur bara meira og orkustigið var bara betra.“

Er það þá ekki mikilvægt fyrir næsta leik að orkustigið sem skrúfað í botn frá byrjun?

„Klárlega. Við þurfum að mæta frá byrjun og þetta er klisja en hausinn þarf að vera rétt skrúfaður á. Við þurfum að vera árásargjarnir frá fyrstu mínútu. Það er erfitt að lenda undir og hvað þá á móti deildarmeisturunum. Við verðum að mæta klárir næst.“

Er Sigtryggur heill?

„Já ég er heill. Ég er kominn aftur.“

Jóhann: Við gerðum svo margt til að tapa þessu

Jóhann Ólafsson kom skilaboðum til sinna manna.Vísir / Guðmundur

„Tilfinningin er góð. Það er alltaf gott að vinna og við eigum fyrsta höggið.“, sagði þjálfari Grindavíkur þegar hann var spurður út í tilfinninguna að hafa náð í sigur í fyrsta leiknum í einvíginu.

Hver var lykillinn að byrjun hans manna?

„Það var bara kraftur í liðinu. Bæði varnarlega og sóknarlega. Við þvinguðum þá í tapaða bolta og við sóttum vel á þá. Ef við hefðum hitt almennilega í fyrri hálfleik hefðum við örugglega verið 30+ yfir en þetta var leikur tveggja hálfleika þar sem við vorum ekki nægjanlega góðir í seinni hálfleik. Stólarnir gerðu vel í að hleypa þessu upp í einhverja vitleysu og við höndluðum það ekki nógu vel í þriðja leikhluta en tókum rispu í fjórða.“

„Við gerðum svo margt til að tapa þessu af vítalínunni. Þetta hafðist.“

Var eitthvað sem Jóhann hefði viljað sjá sína menn gera betur til að höndla vitleysuna sem Stólarnir hleyptu leiknum upp í?

„Við hefðum getað verið ákveðnari á boltann og bara verið þolinmóðari í því sem við vorum að gera. Á þessum kafla erum við að búa til skot en við bara hittum ekki og það gekk upp hjá þeim. Pínu ef og hefði. Við náðum að loka þessu og það er það sem skiptir máli.“

Endurheimtin er það sem skiptir máli á milli leikja að mati Jóhanns ásamt lítilsháttar breytingum í taktíkinni.

„Við þurfum að endurheimta og ná okkur sem allra fyrst.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira