Erlent

Loft­á­rásir skekja vopna­hlé í Líbanon

Agnar Már Másson skrifar
Viðbragðsaðilar við vettvang árásarinnar í dag.
Viðbragðsaðilar við vettvang árásarinnar í dag. AP

Þrátt fyrir að vopnahlé eigi að gilda halda átök áfram milli Ísraels og Hezbolla í Líbanon. Hið minnsta sjö féllu í loftárás Ísraels í Saksakiyeh í dag. Á meðan bíða Bandaríkjamenn eftir því að Íranir bregðist við friðartillögum sínum.

Hið minnsta sjö féllu, þar á meðal eitt barn, í flugskeytaárás Ísraelshers í Saksakiyeh í Suður-Líbanon, að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda. Þá hafi fimmtán særst til viðbótar. Ísraelsmenn höfðu gefið út rýmingartilmæli fyrir fjölda bæja í Líbanon, en Saksakiyeh var ekki meðal þeirra.

Ísraelski herinn heldur því fram að vígamenn Hezbollah hafi verið skotmörk árásarinnar og að meintir vígamenn hafi haldið úti hernaði í byggingunni. 

Frá Saksakiyeh í dag.AP

Hezbollah og Ísraelsmenn hafa á undanförnum vikum skipst á árásum sín á milli þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi sem samþykkt var 16. apríl. 

Á síðustu vikum hafa Bandaríkin haldið tvennar samningaviðræður milli fulltrúa Líbanon og Ísraels í Washington. Reuters hefur eftir heimildarmönnum í bandaríska utanríkisráðuneytinu að frekari viðræður muni eiga sér stað á fimmtudag og föstudag.

Enn ekkert svar

Bandaríkjamenn bíða nú eftir viðbrögðum Írana við friðartillögum sínum. Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio sagði í gærkvöldi að búist yrði við viðbrögðum á komandi klukkustundum en enn hefur ekkert heyrst frá Íran.

Martco Rubio segir að markmiðum hafi verið náð í Íran.Vísir/EPA

Samkomulagið gengur út á það að binda enda á stríð Bandaríkjanna og Íran og að gengið yrði aftur að samningaborðinu til að ræða framtíð kjarnorkuvopnaframleiðslu Írans. Slíkar viðræður stóðu þegar yfir þegar Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir sínar á Íran í lok febrúar.

Katarskt olíuflutningaskip stefnir nú í gegnum Hormússund til Pakistan, en Reuters hefur eftir heimildarmönnum að Íran hafi heimilað siglingu skipsins um sundið í von um að byggja traust við Katar og Pakistan, en þetta er fyrsta katarska olíuflutningaskipið sem fer um sundið frá því að stríðið hófst fyrir rúmum tveimur mánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×