Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 07:32 David Raya reynir að teygja sig í boltann en Pablo heldur í hönd hans eins og sjá má, í aðdraganda marksins sem dæmt var af West Ham. Getty/Alex Pantling Búið er að birta myndband með samskiptum dómara í gríðarstóru atviki sem átti sér stað í leik West Ham og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um nýliðna helgi og gæti skorið úr um topp- og fallbaráttu deildarinnar.
Samskiptin voru opinberuð í þætti ensku úrvalsdeildarinnar: Match Officials Mic'd Up og fóru Michael Owen, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður, og Howard Webb, fyrrverandi dómari í ensku úrvalsdeildinni yfir þau. Atvikið sem um ræðir er að sjálfsögðu mark sem West Ham skoraði í uppbótartíma og var fyrst gefið en svo skoðað í VAR og dæmt af vegna leikbrots á David Raya, markverði Arsenal. Arsenal-menn mótmæltu strax harðlega og við tók reikistefna, hvort markið yrði dæmt gilt eða ekki. Eftir að hafa farið út að hliðarlínu til að horfa á atvikið dæmdi Chris Kavanagh markið á endanum af vegna brots Pablos á David Raya, markverði Arsenal. Leiknum lauk með 1-0 sigri Arsenal. Þrjú stig í pokann sem gætu skipt höfuðmáli í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn á meðan að West Ham berst fyrir lífi sínu í fallbaráttunni og hefði með glöðu geði viljað þetta eina stig sem liðið hefði fengið ef markið hefði staðið. Klippa: Samskipti dómara opinberuð í stærsta atviki tímabilsins Howard Webb er á því að dómarar leiksins hafi tekið rétta ákvörðun í þessu atviki með því að dæma brot. „Búið er að tala um þetta allt tímabilið, sem og á sérstökum fundum dómara með leikmönnum fyrir tímabilið að ef markvörður er hindraður með því að andstæðingurinn grípi í hann eða haldi í handleggi þeirra þannig að þeir geti ekki sinnt sínu starfi þá er það brot.“ Raya geti ekki gert það sem hann myndi venjulega gera í þessari stöðu sökum þess að haldið sé í höndina á honum. Í klippunni hér að ofan má sjá að dómarar leiksins veltu fyrir sér nokkrum mögulegum brotum innan vítateigs í aðdraganda marksins sem tekið var af. Webb segir VAR-dómara leiksins hafa komist að réttri niðurstöðu með því að dæma á alvarlegasta og mesta brotið, sem var brot Pabols á Raya.
Arsenal FC West Ham United Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira