Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar 13. maí 2026 21:01 Leikskólaumræðan hefur, að stórum hluta, gleypt kosningaumræðuna í Kópavogi í aðdraganda þessara kosninga. Samfylkingin hefur sett Reykjavíkurmódelið í leikskólamálum á dagskrá um allt land, þar á meðal hér í Kópavogi þar sem við höfum við sveigt frá Reykjavíkurleiðinni yfir í Kópavogsmódelið. Það var eitt helsta kosningamál okkar 2022 að ná stöðugleika í leikskólunum. Mikið tal um „barnaskatt“ og fundin dæmi sem henta og lýsa mismuni á leikskólagjöldum í Kópavogi og Reykjavík miðað við. þeirra forsendur. Í þeirri upptalningu gleymist auðvitað að þriðjungur leikskólaforeldra í Kópavogi greiðir engin leikskólagjöld, en hvaða máli skiptir það svona á milli vina. Milljóna tekjutap vegna leikskólabiðlista Samfylkingarinnar Þótt Samfylkingunni takist að finna dæmi um foreldra sem greiða um 550 þúsund meira á ári en foreldrar í Reykjavík, situr eftir sú tilfinning að Samfylkingin standi einhvernvegin með bjálka í báðum augum að leita að flís í auga náungans. Forsætisráðherrann sem hefur heldur betur látið málefni leikskólanna sig varða skautar hratt yfir þá staðreynd að barnaskatturinn er hvergi hærri en í Reykjavík. Þar getur einstaklingur á lágmarkslaunum hæglega orðið af þremur milljónum við biðina eftir leikskólaplássi, eða þurft að greiða dagforeldri langtum hærri upphæð en eitthvert leikskólaforeldranna í Kópavogi gerir á leikskólunum okkar. Úrtöluraddirnar líta fram hjá þeirri staðreynd að starfsfólk í leikskólum Kópavogs, sem tók með virkum hætti þátt í innleiðingu kerfisins, er marktækt ánægðara í starfi eftir breytinguna, sem skilað hefur sér í færri veikindadögum og vandamál við mönnun heyra sögunni til. Deildalokanir, með tilheyrandi tekjutapi eða nýtingu veikindaréttar foreldra, eru nær óþekktar í Kópavogi eftir breytingu. Þær eru hins vegar daglegt brauð í Reykjavík ásamt almennt buguðu starfsfólki, manneklu og háu veikindahlutfalli, og það þrátt fyrir að á síðustu þremur kjörtímabilum hafi reykvískum börnum á leikskólaaldri fækkað um 10 prósent. Ég vil halda því til haga að við sjálfstæðismenn erum ennþá að þróa módelið. Kostnaður barnafólks er mikill og við viljum létta undir með þessum hópi. En eins og að framan er rakið þá er krónunni kastað fyrir aurinn þegar biðin er löng og lokunardagarnir margir. Það er engin lausn að fara aftur til baka. Skemmum ekki það sem vel er gert Staðreyndin er reyndar sú að þær hugmyndir sem Samfylkingin hefur haft af hálfu ríkisins hefur verið hafnað af ráðherra málaflokksins sem hefur sagst hafa aðra sýn á málaflokkinn en samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn. Að það verði ekkert af þessum hugmyndum Samfylkingarinnar á kjörtímabilinu. Hvað stendur þá eftir fyrir þennan mikilvæga málaflokk fyrir næsta kjörtímabil sem er handan við hornið? Ekkert - bara lækka kostnaðinn, auka álagið og hægt og bítandi enda aftur í sama gamla farinu. Við erum í mikilli sókn á leikskólunum og erum að fjárfesta allhressilega í nýjum leikskólum fyrir yngstu Kópavogsbúana; nýbúið að byggja einn leikskóla við Barnaskóla Kársness, annar í byggingu í Skólatröð, enn annar á döfinni í Vatnsendahvarfi. Nýr leikskóli í Naustavör í startholunum og annar fyrirhugaður í Glaðheimum. Þá er til skoðunar að opna nýjan leikskóla sunnan Smáralindar. Þá er ég ekki byrjaður að telja upp leikskólana í Vatnsendahlíð þegar við förum þar í gang með nýtt skólahverfi. Leyfum innistæðu- og úrræðalausum gagnrýnisröddum ekki að skemma það sem vel hefur verið gert. Í kjörklefanum er valið skýrt. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Andri Steinn Hilmarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar