Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar 14. maí 2026 10:02 „Yfir dyrum hinnar glæsilegu hallar Vinnumálaskrifstofunnar í Genéve stendur skýrum dráttum letruð latneska setningin: „Si vis pacem, cole justitiam“, er að efni til mætti þýða þannig: „Ef annt þú friðnum, þá iðkaðu réttlæti“. Í þessum orðum felast mikil sannindi, sem sérstaklega má tengja við framkvæmd félagsmálefnanna. Á meðan félagslegt réttlæti ríkir ekki, fæst enginn friður innan þjóðfélagsins. Og sá friður á ekki heldur að fást, fyrr en það réttlæti er tryggt.“ Þessi orð Stefáns Jóhanns Stefánssonar, þingmanns og ráðherra, sem ég las fyrir um tuttugu árum í formála bókarinnar Félagsmál á Íslandi frá árinu 1942, hafa oft leitað til mín. Þau minna okkur á að stjórnmál snúast á endanum um fólk, samfélag og ábyrgð okkar hvert gagnvart öðru. Þau hafa verið mér mikilvægt leiðarljós í mínum pólitísku störfum í gegnum tíðina. Njörður Sigurðsson Það eru ekki síst velferðarmálin sem hafa staðið mér nærri. Á þessu kjörtímabili höfum við í Okkar Hveragerði lagt áherslu á að styrkja stoð- og velferðarþjónustu sveitarfélagsins, auka stuðning við barnafjölskyldur og fjölga fjölbreyttum búsetuúrræðum, s.s. með félagslegum leiguíbúðum, námsmannaíbúðum og íbúðum með aðgengi fyrir alla, svo dæmi séu tekin. Við höfum fundið sterkt fyrir því, bæði frá notendum þjónustunnar og starfsfólki, að þessi uppbygging hefur skipt máli í daglegu lífi fólks. Þar birtist kannski best það samfélagslega réttlæti sem var ofarlega í huga Stefáns Jóhanns fyrir meira en áttatíu árum. Á sama tíma höfum við unnið markvisst að því að bæta rekstur sveitarfélagsins, styrkja fjárhag þess, sækja nýja tekjustofna og gera stjórnsýsluna skilvirkari og vandaðri. Það er mikilvægt vegna þess að öflug velferðarþjónusta og góð samfélagsþjónusta verða aðeins byggð á traustum grunni. Ég sat minn síðasta bæjarstjórnarfund í Hveragerðisbæ síðastliðinn þriðjudag. Minn fyrsta fund sat ég 28. júní 2010, þá sem varamaður í bæjarstjórn, en ég hef starfað sem bæjarfulltrúi frá árinu 2014. Það eru því liðin nær sextán ár síðan ég steig inn í heim sveitarstjórnarmála. Það voru blendnar tilfinningar þegar forseti bæjarstjórnar sleit síðasta fundi þessa kjörtímabils. Þessum árum fylgja ótal minningar, verkefni, áskoranir, árangur og samstarf með góðu fólki. Það er sérstök tilfinning að loka kafla sem hefur tekið svo stóran hluta af lífi manns í langan tíma. Á sama tíma fylgir því ákveðin ró og þakklæti að geta litið til baka og séð hversu margt hefur áunnist fyrir samfélagið okkar á þessum árum. Það er líka góð tilfinning að sjá nýtt og öflugt fólk stíga fram í bæjarmálafélaginu Okkar Hveragerði, sem ég tók þátt í að stofna árið 2018. Hugsjónir og markmið Okkar Hveragerðis hafa alltaf verið skýr: að hafa hagsmuni bæjarbúa og Hveragerðisbæjar að leiðarljósi, óháð landsmálapólitík og hagsmunum landsflokka. Ég veit því að framtíð Okkar Hveragerðis er í góðum höndum með því öfluga fólki sem nú tekur við keflinu og þeirri sterku bakvarðasveit sem stendur þar að baki. Fyrst og fremst ríkir þó þakklæti. Þakklæti fyrir traustið, samstarfið, vináttuna og tækifærið til að taka þátt í að móta samfélagið okkar. Takk Hveragerði. Höfundur er fráfarandi bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Njörður Sigurðsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar