Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar 14. maí 2026 13:00 Það hefur verið stórfurðulegt að fylgjast með opinberri umræðu undanfarið um skóla- og menntamál. Þegar áhyggjur vakna af námsárangri, líðan barna eða stöðu menntakerfisins virðist umræðan enda í því að kennarar eru ábyrgir fyrir öllu því sem fólk telur að hafi misfarist. TALIS 2024 sem er rannsókn OECD á stöðu kennara og skólastjórnenda segir okkur í raun allt annað. Hún leiðir í ljós að íslenskir kennarar er öflugt fagfólk sem starfar í krefjandi umhverfi, ber mikla ábyrgð í störfum sínum og hefur einnig mikla trú á mikilvægi starfsins, en að kerfið sjálft þurfi að styðja betur við störf þeirra. Þetta er líka mín upplifun af samskiptum mínum við kennara í reykvískum grunnskólum og að hafa starfað sem kennari sjálf. Kátir kennarar Ein mikilvægasta niðurstaða rannsóknarinnar er hins vegar umhugsunarverð: Starfsánægja er sterkasti þátturinn sem ræður því hvort kennarar halda áfram í starfi. Kennarar sem upplifa mikla starfsánægju eru tæplega 80% ólíklegri til að vilja hætta á næstu árum. Þetta er atriði sem við sem erum í stjórmálum þurfum að taka til okkar og bregðast við. Ef við viljum halda í kennara og skapa stöðugleikann sem börn þurfa, þurfum við að hætta að ræða um þá eins og þeir séu vandamálið. Við eigum að gera eins vel og við getum til að styðja þá sem lykilfólkið sem þeir eru. Öllum líður okkur best þegar okkur er treyst og við erum hvött áfram í að gera vel. Því er eins með farið með kennara. Þeir þurfa ekki stöðugar skammir, tortryggni og að gerðar séu endalausar kröfur um að _gera meira“. Þeir þurfa starfsumhverfi sem gerir þeim kleift að nýta styrkleika sína, þróast í starfi og finna að þekking þeirra og reynsla skipti máli. Þeir þurfa faglegt traust, raunhæfan stuðning og tækifæri til starfsþróunar og faglegs frelsis. Kennarar eru mikils virði Þá sýnir rannsóknin að íslenskir kennarar upplifa mikið traust sín á milli og að skólastjórar treysti almennt faglegri dómgreind þeirra. Það er dýrmætur grunnur. Á sama tíma segja margir kennarar að þeir fái ekki nægilega gagnlega endurgjöf, að starfsþróun nýtist þeim ekki nógu vel og að samfélagið meti ekki störf þeirra að verðleikum. Aðeins einn af hverjum fimm kennurum telur kennarastarfið njóta virðingar í samfélaginu. Þetta ætti að vera mikið áhyggjuefni fyrir okkur öll. Þá vaknar spurningin: Hvað eiga stjórnmálamenn að gera? Í fyrsta lagi þurfa stjórnvöld að hætta að hugsa um kennaraskort eingöngu sem nýliðunarvanda. Það er vissulega mikilvægt að að fjölga útskriftarnemum með kennsluréttindi en við þurfum líka að búa þeim starfsumhverfi sem þeir kjósa að starfa í til langs tíma. Það þýðir að við þurfum að létta álagið á þeim, minnka skriffinnsku, auka fjölbreyttan stuðning á gólfi og gefa kennurum meiri tíma til að sinna öllum þeim verkefnum sem fylgja starfinu. Í öðru lagi þarf að styrkja faglegt sjálfstæði kennara og skapa meiri tíma fyrir kjarnann sjálfan sem er menntun nemenda og samskipti við þá. Við þurfum að rýna hvernig hægt er að láta kennara gera minna svo að þeir geti gert meira. Nú þegar eru kennarar að kafna í álagi, stöðugum breytingum eða sívaxandi verkefnum sem taka orku frá því sem skiptir mestu máli fyrir menntun barna. Í þriðja lagi þurfa stjórnvöld að fjárfesta markvisst í starfsþróun sem kennarar finna að geri gagn. Rannsóknin sýnir að þátttaka kennara í starfsþróun er mikil en að áhrifin skili sér ekki alltaf þangað sem þau ættu að gera. Starfsþróun þarf að tengjast raunverulegum þörfum kennara, styrkleikum þeirra og áhuga. Í fjórða lagi þarf samfélagið allt, þar með talið stjórnmálamenn og fjölmiðlar, að tala um kennara af meiri virðingu. Ekki af því að kennarar séu hafnir yfir gagnrýni heldur af því að ekkert menntakerfi verður sterkara en sú samfélagslega virðing sem borin er fyrir fagfólkinu sem heldur því uppi dag eftir dag í krefjandi aðstæðum og örum samfélagsbreytingum. Kátir krakkar Ef við viljum að börnunum okkar líði vel, að þau fái góða menntun, eignist vini og fái ríkuleg tækifæri til margs konar þroska og félagsfærni þá byrjar það með þeirri einföldu afstöðu: Að styðja og standa með kennurum. Börnin okkar eiga það skilið að við nálgumst þetta verkefni af alvöru. Og kennarar eiga það skilið að finna fyrir stuðningi okkar allra. Kennarar eru ekki hindrun í vegi framfara í menntamálum. Þeir eru forsenda þeirra. Ég vona að allir kjósi með kennarahjartanu sínu á laugardaginn. Höfundur er frambjóðandi Vinstrisins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Líf Magneudóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar