Oddvitaáskorunin: Grét yfir bókinni í misheppnaðri útilegu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. maí 2026 12:30 Á Kínamúrnum í ferð sem var farin með ungum evrópskum leiðtogum. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir er oddviti Vinstri grænna á Akureyri. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir er fædd og uppalin á Akureyri. Jana er gift Tryggva Hallgrímssyni og saman eiga þau eina tveggja ára stelpu, Arnhildi Öglu. Tryggvi á dóttur úr fyrra hjónabandi, Kötlu. Þau eiga líka íslenska fjárhundinn Röskvu. Jana er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, með B.Sc. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands, MLM gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Jana hefur mest megnis unnið í ferðaþjónustu, en hún var hótelstjóri á Edduhótelum í fimm sumur, hefur starfað á veitingastöðum, bílaleigu, í frístund og á leikskóla. Jana leggur helst áherslu á að náttúruvernd hefjist í heimabyggð, að félagslegur jöfnuður sé grundvöllur góðs samfélags og að geðrækt sé málefni sveitarfélaga jafnt sem ríkisins. Menning er aðdráttarafl góðra samfélaga og því nauðsynlegt að styðja betur við grasrót og listnám barna og ungmenna. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ég myndi held ég hvergi annars staðar vera, en ef ég þyrfti að velja myndi ég líklegast búa í Neskaupsstað.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Ég las Maður sem heitir Ove liggjandi í aftursæti á Isuzu Trooper í misheppnuðustu útilegu ævi minnar og grét, yfir bókinni, ekki misheppnuðu útilegunni. Sú bók fer alveg í topp 5. Annars er ég forfallinn Yrsu aðdáandi og elska góða krimma.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Í því samhengi þyrfti að skoða ólögbundin verkefni sveitarfélagsins og yfirbygginguna.“ Ættarmót í Reykjadal sumarið 2025, hér er hluti afkomenda Egils Jónassonar og Sigríðar Sigmarsdóttur. Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Aukinn stuðningur inní skólakerfið og tryggja fötluðum börnum aðgengi að öllu frístunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Kona sem heitir Jana“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja“ Fjölskyldan við útskrift Kötlu úr HÍ síðasta sumar, Jana, Katla, Arnhildur Agla og Tryggvi Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Það er alltaf gott veður í Akureyrarbæ“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Lífeyrisskuldbindingar, en ég held raunverulega að það sé ekki hægt að skilja þær. Svo ætli ég velji ekki að vera sérfræðingur í velferðarmálum.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Auka stuðning við grasrót menningar og lista“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Ég tók saman umræðupunkta af fundi“ Með Söndru Lind og Unu Maríu, vinkonum úr Listaháskólanum í brúðkaupsveislu okkar hjóna Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Flestar stjórnmálahreyfingar koma nú til greina sem vilja auka jöfnuð í samfélaginu og tryggja mannréttindi fólks. Ég held að ég ætti erfitt með að vinna með Miðflokknum vegna stefnu flokksins í mannréttindamálum.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Ég setti einu sinni skol í hárið í mér og varð eins og Eiríkur Hauksson eftir skerpingu, það eru mistök sem ég geri ekki oftar en einu sinni.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Fólkið, nálægðin við náttúruna og stuttar vegalengdir.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Ég borða yfirleitt ekki morgunmat, en er að reyna að bæta mig og fæ mér þá egg og brauð, eða allavega eitthvað prótein.“ Myndataka hjá Jóndísi Hinriksdóttur Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Mér finnst skorta á framtíðarsýn með hagsmuni allra íbúa sveitarfélagsins að leiðarljósi.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Auka stuðning við menningu og listir, efla almenningssamgöngur og planta nytjarunnum í bæjarlandinu.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „The Promise með Sturgill Simpson, við maðurinn minn vönguðum við það í brúðkaupsveislunni okkar.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Að fara ekki eftir samþykktum stefnum bæjarins t.d. þegar kemur að umhverfis- og loftslagmálum og að meta ekki áhrif ákvarðana á mismunandi hópa.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Jana Samúel, gleraugun hafa verið eitthvað kámug hjá skólastjóranum í 5. bekk þegar hann las upp bekkjarlistana á skólasetningu.“ Hluti yndislegra söngsystkina í Hymnodiu í Hörpu þar sem við sungum þrenna tónleika með Skálmöld. Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Ég kann illa við innihaldslaus loforð, en ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að standa við eins mörg og ég get.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Akureyri Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira