Viðskipti innlent

Farangursvagni ekið utan í flug­vél og flug­ferð af­lýst

Samúel Karl Ólason skrifar
Flugvélin skemmdist þegar farangursvagni var ekið utan í hana. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Flugvélin skemmdist þegar farangursvagni var ekið utan í hana. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm

Flugi Icelandair til New York var aflýst í dag eftir að farangursvagni var ekið utan í flugvélina. Það olli skemmdum á henni og þurfti að aflýsa flugferðinni þar sem flugvélin þarf viðhald vegna skemmdanna.

Fljúga átti af stað klukkan sjö en Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að farþegarnir úr þeirri vél muni þess í stað komast með annarri sem á að fljúga af stað klukkan átta.

Nokkrum flugferðum hefur verið frestað hjá Icelandair að undanförnu vegna skorts á flugmönnum en forstjóri flugfélagsins hefur sakað flugmenn um að stunda óformlegar aðgerðir vegna kjaraviðræðna Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).

Sjá einnig: Icelandair enn og aftur í vandræðum

Kjarasamningar FÍA við Icelandair féllu úr gildi í lok september og er kjaradeila þeirra komin inn á borð ríkissáttasemjara. Samningar eru sömuleiðis lausir við flugvirkja og flugþjóna.

Í gær þurfti til að mynda að fresta tveimur flugferðum vegna manneklu. Í öðru tilfelli var um að ræða farþegaflugferð til Seattle í Bandaríkjunum. Í hinu var um fraktflug að ræða.


Tengdar fréttir

Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós

Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum.

Teknar úr umferð fyrr en til stóð

Icelandair ætlar að hætta rekstri á Boeing 757-þotum sínum fyrr en áætlað var. Er þetta gert í ljósi yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum og snarpra verðhækkana á eldsneyti.

Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir fyrirhuguð áform Icelandair um að kaupa nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. Hann segir áform flugfélagsins vera að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga.

Icelandair grunar flugmenn um græsku

Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×