Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2026 22:18 Pep Guardiola heldur á enska bikarnum. getty/Shaun Brooks Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var að vonum ánægður eftir að hans menn unnu Chelsea, 1-0, í bikarúrslitaleiknum á Englandi í dag. Eftir leik gaf hann í skyn að hann yrði áfram með City-liðið.
Antoine Semenyo skoraði eina mark bikarúrslitaleiksins á Wembley á 72. mínútu. Hann stýrði þá boltanum í netið með hælnum eftir sendingu frá Erling Haaland. Þetta er í þriðja sinn sem Guardiola stýrir City til sigurs í ensku bikarkeppninni. Undir hans stjórn hefur City einnig unnið ensku úrvalsdeildina sex sinnum, deildabikarinn fimm sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni. Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Guardiolas hjá City; hvort hann haldi áfram með liðið sem hann hefur stýrt frá 2016. „Augnablikið sem eldurinn dofnar förum við heim. Ég er fyndinn gaur,“ sagði Guardiola eftir úrslitaleikinn í dag. „Ég hef verið mjög góður á þessu ári. Síðasta tímabil var það erfiðasta af ýmsum ástæðum. Þetta tímabil snýst um hvernig við högum okkur á hverjum degi. Það tók okkur kannski tíma að finna stöðugleika. Enska úrvalsdeildin bíður ekki eftir þér.“ Nýkrýndu bikarmeistararnir fá ekki langa hvíld því á þriðjudaginn sækir City Bournemouth heim í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. City er tveimur stigum á eftir toppliði Arsenal sem mætir nýliðum Burnley á mánudaginn. City þarf að treysta á að Arsenal misstígi sig í síðustu tveimur umferðunum til að verða Englandsmeistari í sjöunda sinn síðan Guardiola tók við liðinu.
Enski boltinn Manchester City Tengdar fréttir Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Manchester City er FA bikarmeistari eftir 1-0 sigur gegn Chelsea í úrslitaleik. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með afar laglegri hælspyrnu. 16. maí 2026 13:30 Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Fleiri fréttir Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Sjá meira
Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Manchester City er FA bikarmeistari eftir 1-0 sigur gegn Chelsea í úrslitaleik. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með afar laglegri hælspyrnu. 16. maí 2026 13:30