Tíska og hönnun

Minnist föður síns með verð­mætu verk­efni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Íris Frímannsdóttir, Regína Björk Jónsdóttir, Erna Magnúsdóttir, Hlín Reykdal og Eva Guðrún Kristjánsdóttir í glæsilegu teiti Ljóssins.
Íris Frímannsdóttir, Regína Björk Jónsdóttir, Erna Magnúsdóttir, Hlín Reykdal og Eva Guðrún Kristjánsdóttir í glæsilegu teiti Ljóssins. Aðsend

Það var mikið fjör á viðburði Ljóssins í síðustu viku þegar samtökin fögnuðu samstarfi við skartgripahönnuðinn Hlín Reykdal. Margt var um manninn og gleðin við völd.

Safnað er fyrir tækjum í nýjan líkamsræktarsal, þar sem Ljósið flytur í stærra húsnæði núna í haust og allur ágóði rennur óskiptur til starfsemi Ljóssins.

„Þegar við leituðum upphaflega til Hlínar var það einmitt á afmælisdegi pabba hennar en hún missti pabba sinn, úr krabbameini. Henni fannst því skrifað í skýin að vinna með Ljósinu og er að gefa alla sína vinnu,“ segir í tilkynningu frá Ljósinu.

„Af þessu tilefni héldum við viðburð, þriðjudaginn 12. maí klukkan 17:00-18:30. Við vorum í glæsilegu höfuðstöðvum Landsbanka Íslands, Reykjastræti 6. Á viðburðinum frumsýndum við Ljósa „charmið“ sem Hlín hannaði. Um 300 manns mættu og það var virkilega gaman að sjá svona marga.“

Hér má skoða nýju samstarfslínuna betur og hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu:

Una, Brynja, Halldóra og Tanja.Aðsend
Eyvindur og Axel frá Studio Fin ásamt Matta Ósvald markþjálfa hjá Ljósinu.Aðsend
Hólmfríður og Hugrún smart í rauðu.Aðsend
Eva, Eyvindur og Axel.Aðsend
Fjölmargir litu við!Aðsend
Íris, Regína, Eyvindur, Axel og Eva -Markaðs og samskiptateymi Ljóssins ásamt StudioFin sem hafa m.a. unnið að herferðinni.Aðsend
Þórhildur Þorkellsdóttir og Rósa María Árnadóttir.Aðsend
Thelma Björk, Ída Jósepsdóttir og Ingibjörg Ásmundsdóttir.Aðsend
Inga Þórisdóttir, Hreiðar Þór Jónsson og Sigrún Þorleifsdóttir.Aðsend
Hildur Sigurðardóttir og Birna Dröfn Jónasdóttir.Aðsend
Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.Aðsend
Fólk spjallaði, skálaði og verslaði.Aðsend
Þorgerður Katrín á spjalli.Aðsend
Þær Sif Sveinsdóttir og Hugrún Geirsdóttir fengu fyrstu hálsmenin við hátíðlega athöfn en þær hafa báðar verið duglegar að nýta sér þjónustu Ljóssins og tóku þátt í auglýsingunni. Aðsend
Jón Eyjólfur Guðmundsson og Þorgerður Katrín.Aðsend
Karítas Ósk Ahmed ásamt dóttur sinni.Aðsend
Hildur og Harpa Mjöll Grétarsdóttir.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.