Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson skrifa 19. maí 2026 20:01 Íslandsmeistarar Grindavíkur 2026 Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Nokkrir stuðningsmenn Grindavíkur gáfu miða sinn á leik liðsins í Síkinu í gærkvöldi, þar sem að Grindavík vann sinn fjórða Íslandsmeistaratitil í sögunni, eftir að kvissaðist út að tveir af lykilmönnum liðsins væru meiddir.
Íslandsmeistaratitilinn unnu Grindvíkingar án tveggja lykilmanna í þeim Ólafi Ólafssyni og DeAndre Kane sem voru að kljást við meiðsli. Vitað var af stöðu þeirra í aðdraganda leiksins en stöðu þeirra haldið innan liðsins eins og hægt var. Ólafur og Kane hefðu geta beitt sér en ákveðið var að hlífa þeim. Klippa: Gáfu miðann sinn og misstu af stóru stundinni „Ég vissi af þessu,“ sagði Ingibergur Þór Jónasson, fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í samtali við Val Pál Eiríksson íþróttafréttamann. „Ég ræddi við Jóhann þjálfara og kíkti á æfingu tveimur til þremur dögum fyrir leik. Kíkti heim á Ólaf. Mín hugsun var sú að fyrst þeir geta spilað, af hverju setjum við þá ekki í búning því við vitum aldrei hvernig Stólarnir mæta. Það getur einhver meiðst í hinu liðinu. Jóhann þjálfari segir alltaf: „þetta var aldrei í hættu“ og með vissu tóku hann og Helgi þessa ákvörðun. Staðan á Ólafi og Kane kvissaðist út meðal einhverra stuðningsmanna Grindavíkur. Höggið gífurlegt og voru einhverjir sem sáu það ekki gerast að Grindavík gætu sótt sigur og Íslandsmeistaratitil í Síkið án þessara öflugu leikmanna. Einhverjir Grindvíkingar losuðu sig við sinn miða á leikinn. „Ég hefði reynt að fylgja liðinu. Þú veist aldrei. Maður hefur séð ótrúlega hluti gerast. Ég finn bara til með fólkinu sem var komið með miða og frétti af þessu. Við reyndum að segja engum frá þessu. Margir gáfu miðann sinn. Það er auðvelt að reyna finna ódýra afsökun fyrir því að mæta ekki. Ég hef gert það sjálfur. Trúin. Þetta samfélag. Þetta sýnir að við getum allt. Unnum í gær á ótrúlegan hátt. Leikurinn var frábær af hálfu Grindvíkinga og sér í lagi Jeremy Pargo sem átti einn besta leik sem leikmaður hefur átt í úrslitaeinvígi efstu deildar í sögunni. Pargo skoraði alls 48 stig í leiknum sem er nánast einsdæmi í úrslitaeinvígi á Íslandi. Hann fór fyrir sínu liði frá upphafi og skoraði 22 stig í fyrsta leikhlutanum, þegar Grindvíkingar, sem léku án þriggja lykilmanna, bjuggu til bil sem Tindastóli tókst aldrei að brúa. Pargo setti meðal annars niður tíu þrista í leiknum, sem er met í úrslitum í óframlengdum leik, og þar af var náðarhöggið sem hann veitti Tindastólsmönnum þegar hann jók muninn í 105-101 hálfri mínútu fyrir leikslok.
Bónus-deild karla Grindavík Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira