Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. maí 2026 11:19 Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku. vísir „Ísland er orðið dýrasta land heims í dag. Það er orðið nær tvöfalt dýrara en Evrópa að meðaltali og hefur aldrei verið eins dýrt og akkúrat núna. Við erum orðin miklu dýrari heldur en dýrustu lönd heims sem við berum okkur iðulega saman við.“
Þetta segir Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, í samtali við fréttastofu. Í greiningu Visku, stéttarfélags háskólamenntaðra sérfræðinga, kemur fram að verðlag á Íslandi mælist 84 prósentum hærra en í öðrum löndum í Evrópu sem sé sögulegt met ef horft er til síðustu 30 ára. Ísland sé nú dýrasta land í heimi og hefur aldrei mælst dýrara en í ár. Fordæmalaus dýrtíð Vilhjálmur segir verðlag mun hærra á Íslandi en á Norðurlöndunum. „Við erum Norðurlandameistarar í flestum flokkum neyslukörfunnar. Við greiðum 70 prósentum hærra verð fyrir kjötvörur en aðrir Norðurlandabúar, 40 prósentum hærra verð fyrir bifreiðar og svo framvegis. Dýrtíðin er bara fordæmalaus á Íslandi í dag. Við erum að taka mjög fram úr Norðurlöndunum á síðustu tveimur árum og þetta er óvenjuleg þróun. Það virðist vera að ofurtollar og fákeppni á Íslandi sé að ýta verðlagi upp í sársaukamörk.“ Hann tekur fram að hærri laun á Íslandi skýri ekki dýrtíðina og bendir á að í raun sé verðmunur milli Íslands og Norðurlandanna nær tvöfaldur miðað við launamuninn. „Það hafa vissulega verið miklar launahækkanir sem hafa haft áhrif á verðlag. Alveg óháð því þá er fákeppni á Íslandi sem gerir versluninni kleift að auka eða hækka verðin umfram kostnað. Þetta er dálítið leiðigjörn söguskýring að launin skýri allt. Það eru tollarnir, það er fákeppnin. Við hjá Visku erum núna að kalla eftir því að allir aðilar vinnumarkaðar, hvort sem á atvinnulífshliðinni eða verkalýðshliðinni, að þeir svona fari að tala heildstætt um verðmyndun á Íslandi.“ Hann segir umrætt ofurverðlag hafa gífurleg áhrif á samkeppnishæfni ferðamannabransans og annarra atvinnugreina. „Þetta kemur náttúrulega ekki bara niður á venjulegum heimilum heldur líka samkeppnishæfni marga útflutningsatvinnugreina. Ferðaþjónustuna og svo framvegis. Þetta er bara þjóðhagslegt vandamál. Við erum orðin þó nokkuð dýrari heldur en helstu samkeppnislöndin í ferðaþjónustunni eins og Noregur. Við erum á mjög grimmum samkeppnismarkaði. “ Álagning í verslunum aukist verulega Hann segir það einnig augljóst að álagning í verslunum hér á landi hafi aukist til muna undanfarin ár. „Það er svigrúm til að lækka verð. Þannig að við hvetjum fyrirtækin til að sýna samfélagsábyrgð og lækka verð um 10 prósent í sumar. Þetta getur ekki gengið svona áfram. Verðlag er einfaldlega orðið of hátt á Íslandi og ef okkur tekst ekki að koma verðbólgunni niður fyrir viðskiptalöndin þá mun krónan veikjast og kaupmáttur rýrna, það er bara staðreynd,“ segir hann og bætir við: „Við sáum það bara nú nýlega að framlegð, til dæmis hjá Bónus, hefur verið að hækka síðustu tvö árin sem bendir til þess að álagning sé að aukast. Ofurtollar í landbúnaði eru að þrýsta matvöruverði hérna hærra en á Norðurlöndunum. Það eru alls konar séríslenskar aðstæður sem gera það að verkum að verðlag virðist verða varanlega hærra hér en annars staðar.“ Ertu vongóður um að fyrirtæki verði við þessari hvatningu? „Nei, ég er ekkert sérstaklega vongóður í ljósi sögunnar en við getum alveg bókað það að þau fyrirtæki sem byrja að sýna slíka hegðun verður umbunað ríkulega af neytendum.“ Hann hvetur einnig heimilin til að verðlauna þau fyrirtæki með lægra verðlag og hvetur almenning til að auka verðvitund sína.
Verðlag Ferðaþjónusta Kjaramál Efnahagsmál Vinnumarkaður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira