Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson, Hörður Þorsteinsson og Sigrún Guðmundsdóttir skrifa 22. maí 2026 07:31 Stjórnvöld boða nú breytingar á heilbrigðiseftirliti undir merkjum einföldunar. Fáir eru á móti einfaldara og skilvirkara eftirliti. Þvert á móti. Það er sjálfsagt markmið að rekstraraðilar fái skýr svör, að reglur séu túlkaðar með sambærilegum hætti og að almenningur geti treyst því að matsölustaðir, neysluvatn, leiksvæði, skólar, sundlaugar og mengandi starfsemi sæti traustu eftirliti. En spurningin er ekki hvort markmiðið sé gott. Spurningin er hvort sú lausn sem er valin sé vænleg leið að því markmiði. Í dag sinnir heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga fjölbreyttum verkefnum í sínu nærumhverfi. Sami eftirlitsaðili getur í mörgum tilvikum horft heildstætt á fjölþætta starfsemi: Matvæli, hollustuhætti, mengunarvarnir, húsnæði, fráveitu og umgengni. Þetta skiptir máli. Eftirlit er ekki bara eyðublað, stimpill eða heimsókn með gátlista. Það er líka þekking á staðháttum, reynsla, samtal, leiðbeiningar og skjót viðbrögð þegar eitthvað fer úrskeiðis. Nú er lagt upp með að verkefni heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna skiptist milli tveggja ríkisstofnana. Matvælaeftirlit verður flutt í einn farveg og hollustuhátta- og mengunarvarnaeftirlit í annan. Á pappír kann þetta að líta snyrtilega út. Í raunveruleikanum verður þetta flóknara. Tökum einfalt dæmi. Leikskóli er ekki bara bygging. Þar eru börn, eldhús og leiksvæði. Huga þarf að matvælaöryggi, hreinlæti, innilofti, úrgangi og ýmsum öryggisatriðum. Í dag getur heilbrigðiseftirlitið nálgast þessa starfsemi með heildaryfirsýn á þessi atrið. Í nýju kerfi mun sami leikskólinn þurfa að eiga samskipti við tvær stofnanir, sæta tveimur úttektum sem fylgja hvor sínu ferli og á endanum greiða tvisvar og kannski allt að tvöfalt fyrir allt saman. Sama gildir um veitingastaði, skóla, vatnsveitur, gististaði, matvælaframleiðslu og ýmis önnur fyrirtæki þar sem matvæli, hollustuhættir og umhverfisþættir skarast. Þá vaknar eðlileg spurning: Hvar er einföldunin? Ef eitt samþætt eftirlit verður að tveimur aðskildum ferlum, tveimur boðleiðum og tveimur skráningum með tveimur gjaldskrám, er hætt við að einföldunin verði fyrst og fremst einföldun á stofnananeti ríkisins, en ekki á þjónustu við fólk og fyrirtæki. Rekstraraðilar upplifa ekki einföldun ef þeir þurfa að bíða lengur, senda sömu upplýsingar oftar, fá fleiri aðila í heimsókn og greiða hærri gjöld. Almenningur upplifir ekki einföldun ef leita þarf úr einni stofnun í aðra með fyrirspurnir og kvartanir. Kostnaðurinn hverfur heldur ekki þótt hann færist til. Ef nýtt ríkiskerfi á að reka miðlæga stjórnsýslu, upplýsingakerfi, starfsstöðvar, eftirlitsferðir og nýja innviði þarf einhver að borga. Yfirleitt endar slíkt annaðhvort hjá skattgreiðendum, rekstraraðilum eða neytendum. Þegar þjónustugjöld eiga að standa undir rekstri eftirlitsins þýðir það venjulega að kostnaðurinn lendir til að byrja með á þeim sem eftirlitið beinist að og að lokum hjá almenningi í verði vöru og þjónustu. Þá er ótalinn kostnaður sveitarfélaga. Ef verkefni sem fylgja tekjur færast til ríkisins, en ýmis staðbundin, erfið og oft tekjulítil verkefni verða áfram eftir í héraði, er ekki verið að leysa neinn vanda. Það er aðeins verið að færa tekjurnar annað og skilja hluta ábyrgðarinnar eftir. Það þarf ekki að rífa niður kerfi til að bæta það. Ef vandinn er ósamræmi, skortur á yfirsýn og ólík framkvæmd milli svæða, þá er eðlilegt að ráðast beint á þann vanda: Sameiginlegt upplýsingakerfi, samræmdar leiðbeiningar, skýr frammistöðuviðmið, virk gæðastjórnun, betri þjálfun og sterkara samræmingarhlutverk ríkisstofnana. Slíkar umbætur geta skilað góðri samræmingu án þess að raska þjónustu sem byggir á nálægð, þekkingu og skjótum viðbrögðum. Almenningur á ekki að þurfa að borga fyrir stjórnsýslutilraun sem lítur út fyrir að vera flóknari en kerfið sem hún átti að einfalda. Rekstraraðilar eiga ekki að fá fleiri úttektir í nafni einföldunar, sem engin er. Sveitarfélögin eiga ekki að sitja eftir með ábyrgðina á meðan tekjustofnarnir færast annað. Áður en svona stór breyting er keyrð í gegn þarf að liggja fyrir einfalt svar við einfaldri spurningu: Verður þjónustan í raun hraðari, ódýrari og skilvirkari fyrir þá sem nota hana? Ef svarið er ekki já, þá er ekki um einföldun að ræða. Höfundar eru stjórnarmenn í Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Ásmundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Hörður er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness og Sigrún er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar