„Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 10:17 Arnar segir sorglegt að sjá Leicester falla annað árið í röð. Oksana Vasylieva/Global Images Ukraine via Getty Images Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, rifjaði upp gamla tíma með Leicester City í samtali við Sýn Sport á dögunum. Hann heldur til Frakklands að hitta gamlan félaga í sumar.
Íþróttafréttamanni Sýnar áskotnaðist Leicester treyja merktri Arnari og þótti tilefni til að sýna landsliðsþjálfaranum treyjuna og rifja upp gamla tíma. Aðspurður um hvað komi upp í hugann við að sjá hana segir Arnar: View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) „Bara góðar minningar, maður átti frábæra liðsfélaga og mjög gott lið. Það er mjög sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi núna. Peningavesen og læti. Það sýnir hvað þetta er fljótt að fara á hina hliðina í okkar annars ágætu íþrótt.“ Líkt og Arnar bendir á stendur Leicester ekki vel í dag. Liðið féll í vor, annað árið í röð, eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra. Áratug eftir sögulegan Englandsmeistaratitil mun liðið því spila í C-deildinni næsta vetur. Skrautlegir félagar Arnar rifjaði þá upp sitt uppáhalds augnablik með Leicester-liðinu en hann skoraði öflugt sigurmark gegn Aston Villa í enska bikarnum á Villa Park. Arnar rifjaði upp kynni sín af Robbie Savage, Stan Collymore og Roberto Mancini á tíma hans hjá Leicester.Samsett/Getty „Það var eitthvað til tikka af mínum golulista (e. bucket list),“ segir Arnar en markið má sjá í viðtalinu í spilaranum. Hann ræddi þá nokkra skrautlega liðsfélaga, til að mynda Roberto Mancini, sem þeir félagar buðu á hræðilegan kínverskan veitingastað eftir komu hans til Leicester, Ade Akinbiyi, Stan Collymore og Robbie Savage. Heimsækir fyrrverandi markvörð Liverpool í sumar Hvað tengsl við fyrrum félaga sína varðar í dag er ef til vill óvænt að Arnar stefnir í reisu til Frakklands að hitta markvörðinn Pegguy Arphexad í sumar. Sá stóð sig það vel hjá Leicester að Gerard Houllier keypti kauða til Liverpool þar sem Frakkanum tókst þó ekki að slá í gegn. „Ég fæ símtal í fyrra frá Pegguy Arphexad. Við höfðum ekki hist í 25 ár en hann kemur til landsins með fjölskylduna sína og við hittumst. Það var bara eins og við höfðum hist síðast í gær. Ég er að fara að hitta þau aftur í Frakklandi í sumar,“ segir Arnar. Viðtalið má sjá í spilaranum fyrir neðan. Klippa: Arnar Gunnlaugs rifjar upp gamla tíma í Leicester
Enski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Sjá meira