Kæra ef þeir tapa Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 14:10 Hull mætir Middlesbrough í úrslitum umspilsins í dag. Tapi liðið leiknum verður niðurstaðan kærð. Warren Little/Getty Images Hull City mun kæra niðurstöðu umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta fari svo að liðið tapi úrslitaleik við Middlesbrough á Wembley í dag. Þetta staðfestir eigandi félagsins.
Hull mætir Boro í úrslitaleiknum í dag en hafði undirbúið sig fyrir það að mæta Southampton þangað til það breyttist í miðri viku. Southampton vann Middlesbrough í undanúrslitum umspilsins en var svo rekið úr keppni fyrir njósnir á andstæðingum. Middlesbrough fékk þá sæti í úrslitunum þrátt fyrir að hafa þegar fallið úr leik. Stjórnarmenn hjá Hull segja óeðlilegt að lið sem er úr leik fái skyndilega þar sæti. „Lögfræðiteymi okkar segir að við ættum að skora á þetta, það er klárt,“ segir Acun Ilicali, eigandi Hull, við breska ríkisútvarpið, BBC. „Það er enginn vafi um það. Við viljum réttlæti og ef réttlæti næst ekki nýtur enginn fótboltans.“ Ilicali segir ákvörðunina að gefa Middlesbrough aftur sæti í umspilinu vart trúlega. „Ef þetta var svo stórt mál að lið er úr leik í umspilinu, hvers vegna spila þeir þá ekki undanúrslitin aftur? Af hverju ekki að taka Southampton út og setja Wrexham inn?“ spyr Ilicali en Wrexham var efst þeirra liða sem ekki komust í umspilið í deildinni. „Fyrir mér, að setja lið inn sem er þegar dottið út – og það er skoðun lögfræðiteymisins einnig – ótrúlega röng ákvörðun.“ Leikur Hull City og Middlesbrough hefst nú klukkan 14:30 og er sýndur beint á Viaplay.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira