Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Sigurgeir Þorkelsson skrifar 25. maí 2026 15:24 Páll Óskar er einn eftirsóttasti skemmtikraftur landsins. Vísir/Vilhelm Metfjöldi útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands þetta árið og þurfti því að skipta nemendum í tvo hópa við athafnir sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gær. Alls settu 358 Verzlingar upp húfur sínar á laugardag og var fagnað í partíum um allt höfuðborgarsvæðið þar sem vinsælustu listamenn þjóðarinnar tróðu upp.
Eflaust hefur þar verið skálað fyrir dúxinum Örnu Brá Birgisdóttur, sem útskrifaðist með 9,9 í meðaleinkunn, og semidúxinum Vilhjálmi Geir Geirssyni, sem lauk námi með 9,88 í meðaleinkunn. Þekktir listamenn koma fram Færst hefur í aukana, líkt og í fermingarveislum hér á landi, að vinsælasta tónlistarfólk landsins meðal ungu kynslóðarinnar sé keypt sem skemmtiatriði í stúdentsveislum og var engin undantekning á því á laugardaginn. Samkvæmt heimildum Vísis eru Emmsjé Gauti, Herra Hnetusmjör, Króli, Frikki Dór og Páll Óskar meðal listamanna sem trylltu lýðinn í partíum. Í dagbók lögreglu fyrir aðfararnótt sunnudags kom fram að húsráðandi í umdæmi Lögreglustöðvar 3, sem sinnir Breiðholti og Kópavogi, hafi óskað eftir aðstoð lögreglu við að koma partígestum úr húsi. Er spurning hvort þar sé um að ræða partí sem fram fór í Salahverfinu, sem var einkar veglegt af heimildum Vísis að dæma. Þar komu fram þrír af þeim listamönnum sem taldir voru upp hér á undan. Útskriftarhópur Verzlinga hélt síðan af stað í útskriftarferð sína í morgun. Einhverjir úr bransanum munu fylgja þeim og öðrum stúdentum til Krítar en gríska eyjan verður undirlögð um eitt þúsund íslenskum stúdentum næstu vikurnar eins og fjallað var um í síðustu viku.
Framhaldsskólar Tímamót Tónlist Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira