„Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 10:16 DeAndre Kane varð Íslandsmeistari með Grindavík 18. maí en ellefu dögum síðar handtekinn við komuna heim til Pittsburgh. mynd/Sigurður Ingi Pálsson „Ég vissi alveg að hann skuldaði barnameðlög og hann var alveg opinn með það við okkur. En ég vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt. Ég hélt að þetta væri í einhverju ferli,“ segir Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, um mál DeAndre Kane sem handtekinn var við komu heim frá Íslandi til Pittsburgh á föstudagskvöld.
Yfirvöld í Pittsburgh segja að þessi bráðum 37 ára leikmaður Íslandsmeistaranna skuldi 100.000 Bandaríkjadali í meðlagsgreiðslur, eða um það bil 12,3 milljónir króna. Hann hafi verið á flótta frá árinu 2023 þegar hann mætti ekki fyrir dóm vegna málsins. Ljóst er að Kane hefur þó ferðast ítrekað til Pittsburgh frá Íslandi síðan hann kom fyrst til Grindavíkur árið 2023, í jóla- og sumarfríum og jafnvel í landsleikjahléum. Óli Björn segist ekki vita hvers vegna það var akkúrat núna sem Kane var handtekinn við lendingu á alþjóðaflugvellinum í Pittsburgh, og tíðindin komu honum talsvert á óvart eftir að hafa síðast fundað með Kane á föstudaginn og gengið endanlega frá því að Bandaríkjamaðurinn yrði aftur með Grindavík á næstu leiktíð. Hafi fengið að vita af syninum sjö árum eftir fæðingu Kane hefur aldrei farið leynt með það gagnvart vinnuveitendum sínum í Grindavík að hann skuldaði meðlag en Óli Björn sagðist hafa talið að lausn hefði fundist á því máli. „Hann á þrjú börn þarna úti, tvö með núverandi konunni sinni og svo þennan dreng sem þetta mál snýst um. Mér skilst að hann sé 11-12 ára gamall í dag og Kane fékk ekki að vita af honum fyrr en strákurinn var orðinn sjö ára gamall, þegar mamma hans kemur og segir honum að hann eigi þennan dreng. Hann er þá dæmdur til að borga barnameðlag sjö ár aftur í tímann og þannig er þessi skuld tilkomin. Hann hefur talað um þetta við okkur og ekkert farið í grafgötur með að hann skuldaði barnameðlag úti, og ég hélt að þetta væri bara í einhverju ferli. Að hann hefði samið um einhverjar mánaðarlegar greiðslur eða slíkt. En það er greinilega ekki þannig. Það kemur mér því jú svolítið á óvart að hann hafi hreinlega verið tekinn fastur karlgreyið þegar hann kom þarna út,“ segir Óli Björn. DeAndre Kane átti ríkan þátt í langráðum Íslandsmeistaratitli Grindavíkur.vísir/Anton Óli Björn segir einnig koma á óvart að málið endi með handtöku núna því að Kane hafi til að mynda í fyrsta sinn fengið að hafa drenginn hjá sér um síðustu jól og sé í góðu sambandi við hann. Engar áhyggjur af að málið haldi Kane frá Íslandi Aðspurður kveðst Óli Björn ekki hafa áhyggjur af því að málið hafi áhrif á þátttöku Kane með Grindavík á næstu leiktíð. „Ég á ekki von á því. Þetta er eitthvað sem verður leyst þarna úti. Ég hef engar áhyggjur af því að hann sé að fara í steininn næstu árin eða neitt svoleiðis. Honum verður sleppt eftir 72 tíma í síðasta lagi og svo fer þetta bara í eitthvað ferli. En þetta er, að því er mér skilst, ekki eitthvað sem gæti bannað honum að koma aftur til Íslands að spila körfubolta, því hann er að ferðast um á ungversku vegabréfi, ekki bandarísku. Hann er ungverskur ríkisborgari og það er ástæðan fyrir því að hann spilar með okkur,“ segir Óli Björn.
UMF Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira