Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. júní 2026 07:01 Christoph Sündermann og Tinna Empera giftu sig í Hellisgerði á dögunum. Marsý Hild „Við ákváðum að fá allt okkar nánasta fólk, sem kemur frá öllum heimshornum, hingað til Íslands til að fagna okkar brúðkaupi,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtirinn Tinna Empera sem giftist sínum heittelskaða Christoph Sündermann á dögunum við afslappaða og skemmtilega athöfn.
Christoph er grafískur hönnuður en þetta listræna par er búsett í Þýskalandi og vinnur líka mikið í New York. Hjúin kynntust á Tinder fyrir sjö árum í Miami en fyrsta stefnumótið þeirra var á ströndinni þar. Blaðamaður ræddi við Tinnu um stóra daginn. Nýgift og í blóma lífsins!Marsý Hild Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Það var þegar vorum á Íslandi yfir jólin 2024. Christoph bað mín við pylsuvagninn á Bæjarins beztu á leiðinni heim eftir mjög skemmtilegt þorláksmessukvöld á 12 tónum með DJ Geira Goodshit. Christoph bað Tinnu á Bæjarinz bestu.Marsý Hild Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Síðastliðið vor vorum við í heimsókn á Íslandi og það var svo fallegt. Allt að blómstra, lömbin að fæðast og langir dagar. Við ákváðum þá að fá allt okkar nánasta fólk, sem kemur frá öllum heimshornum, hingað til Íslands til að fagna okkar brúðkaupi. Hjónin elska íslenska vorið og ákváðu því að halda brúðkaupið hér heima.Marsý Hild Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Vá, dásamlegur. Eins og ég nefndi var mikið af fólki sem kom alls staðar frá, New York, LA, Miami, Þýskandi, Kanada og nokkrir komu meira segja alla leið frá Ástralíu. Það var svo fallegt að sjá alla saman að fagna með mér og Christoph. Hjónin voru umkringd nánustu vinum og fjölskyldu.Marsý Hild Voruð þið sammála í skipulaginu? Nei við erum mjög ólík hjónin, Christoph vildi hafa mjög lítið brúðkaup þannig við buðum einungis okkar nánasta fólki til að finna milliveg. Ég er algjör partý pinni og elska að dansa og syngja, því urðum við að hafa gott line-up til að lofa góðu partýi. Auðvitað kom DJ Geiri Goodshit sem spilaði kvöldið sem við trúlofuðumst. Lottó the Band tróð líka upp og plötusnúðurinn Mama Gunz endaði kvöldið. Við dönsuðum mjög mikið. Hjónin dönsuðu fram á rauða nótt.Marsý Hild Hvað fannst ykkur mikilvægast? Við erum mjög heppin vera umkringd hæfileikaríku fólki sem gat hjálpað að halda kostnaðinum niðri. Erla systir mín bakaði risa stóra brúðarköku-pavlovu. Kimi vinkona mín saumaði brúðarkjólinn. Alda stílisti sjá um skreytingu á salnum og blómaskreytingar. Harpa Kára sá um að farða mig. Systir Tinnu bakaði þessa glæsilegu pavlovu.Marsý Hild Fjölmargir lögðu hönd á plóg en það er heilmikil vinna að halda stóra brúðkaupsveislu. Við erum alveg svakalega þakklát fyrir fólkið okkar og það var svo fallegt að sjá alla taka þátt. Tinna og Christoph eiga marga góða að sem aðstoðuðu við brúðkaupið.Marsý Hild Hvaðan sóttuð þið innblástur? Við vildum hafa sveitastemmingu en vera samt á höfuðborgarsvæðinu. Við skoðuðum Ægi 220 í Hafnarfirði síðasta haust og vorum bæði sammála um að það væri fullkomni staðurinn fyrir okkar partý. Þar er hátt til lofts, salurinn mjög hrár og minnti okkur á gamlan bóndabæ nema með útsýni yfir höfnina í Hafnarfirði. Salurinn varð að fullkominni blöndu af skreytingum sem við ákváðum með Öldu, blúndudúkum, alls konar silfri, kertastjökum, krukkum og fjallablómum. Siggi kokkur hélt síðan risa grillveislu fyrir okkur sem hélt sveita stemningunni gangandi. Salurinn er hrár og skemmtilegur og var fallega skreyttur.Marsý Hild Hvað stendur upp úr frá deginum? Svo margt. Við ákváðum að hafa athöfnina okkur í Hellisgerði í Hafnarfirði með öllum álfunum. Mamma töffari leiddi mig að altarinu við lagið okkar Christophs I walk the line með Johnny Cash. Björg Magnúsdóttir frænka mín gifti okkur og eftir athöfnina skáluðum við í fallega garðinum og gengum dansandi yfir með alla gesti með fram höfninni. Það var alveg sjúklega skemmtilega og allir í svo miklum gír. Algjörir töfrar. Móðir Tinnu gekk með henni að altarinu í Hellisgerði.Marsý Hild Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Já heldur betur, Stefán Sigurðsson og Sigríður Ásgeirsdóttir voru bestu veislustjórar. Allt brúðkaupið var á ensku þannig pössuðum okkur að hafa góða vini sem fannst þægilegt að vera uppi á sviði og leiða á ensku. Sigga er þjálfari og danskennari þannig hún leiddi alla í dans og Stefán söng með Hljómsveitinni Lottó. Lottó hélt tryllt partý fyrir okkur þar til DJ Mama Gunz kom og lokaði kvöldinu. Þetta var algjör veisla. Hjónin skera brúðar-pavlovuna. Marsý Hild Hvað voru margir gestir? Við vorum áttatíu í heildina. Töfrandi stemning.Marsý Hild Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það? Ég er með algjöra vintage dellu og elska að grúska í notuðum og gömlum flíkum sem eru öðruvísi. Því vissi ég að ég þyrfti að finna mér mjög einstakan brúðarkjól. Vinkona mín í Þýskalandi er saumakona og hjálpaði mér mikið. Slörið var gert úr blúndum úr brúðarkjól mömmu hennar Tinnu.Marsý Hild Ég keypti tvo vintage silki-brúðkaupskjóla frá Ítalíu sem við endurgerðum, svo notuðum blúndur úr gamla brúðarkjólnum hennar mömmu á kjólinn og bjuggum til brúðarslör. Þessi upplifun var svakalega skemmtileg, það er náttúrulega algjör draumur að fá eitthvað sérsaumað á sig. Að mínu mati var kjólinn fullkomin í alla staði og mjög original. Kjóllinn heppnaðist mjög vel.Marsý Hild Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Við Christoph erum svo ólík við þurftum oft að taka tillit til hvors annars í skipuleggingu. Þetta er brúðkaupsdagurinn okkar beggja. Tinna segir mikilvægt að brúðhjón taki tillit til hvors annars.Marsý Hild Ætlið þið í brúðkaupsferð? Við ætlum ekkert fyrr en næsta vetur. Núna er sumarið að byrja bæði í Þýskalandi og á Íslandi þannig við elskum að njóta sumarsins á báðum stöðum. Við stefnum samt á Tæland eða einhvern góðan stað þar sem er heitt á veturna. Hjónin stefna á brúðkaupsferð næsta vetur.Marsý Hild
Brúðkaup Tíska og hönnun Mest lesið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Tíska og hönnun Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Lífið Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Lífið Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“