Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Kjartan Kjartansson skrifar 4. júní 2026 13:08 Um sjötíu til áttatíu prósent lögbýla á Íslandi eru ekki bújarðir í eiginlegum skilningi orðsins samkvæmt nýrri skýrslu Landbúnaðarháskólans. Þar eru lagðar til nýjar takmarkanir á eignarhald og viðskipti með landbúnaðarjarðir. Vísir/Vilhelm Tvö af hverjum þremur lögbýlum á Íslandi eru ekki í skráðum rekstri sem tengist landbúnaði og vísbendingar eru um að lögum sem eiga að takmarka óhóflega jarðasöfnun sé ekki beitt. Lagt er til að lög um eignarhald á jörðum verði hert í skýrslu á vegum Landbúnaðarháskólans.
Innan við fimmtungur þeirra um 486.000 hektara sem eru taldir mjög gott ræktunarland á Íslandi virðist vera nýttur til matvælaframleiðslu samkvæmt skýrslu Landbúnaðarháskólans sem kynnt var á málþingi í dag. Þannig eru landgreiðslur aðeins greiddar út á um 90.000 hektara lands. Landgreiðslur eru ríkisstyrkir sem eru greiddir til landeigenda út á land sem er uppskorið til fóðuröflunar. Samantekt þeirra Torfa Jóhannessonar og Ásdísar Hlakkar Theodórsdóttur frá Landbúnaðarháskóla Íslands leiddi ennfremur í ljós að eignarhald á jörðum á Íslandi væri um margt óljóst. Þannig væru rúmlega 600 lögbýli í eigu dánarbúa og ríflega 500 í sameiginlegri eigu fimm eða fleiri aðila. Tæplega sjötíu jarðir voru í eigu tuttugu eða fleiri aðila. Þrettán prósent lögbýla er skráð í eyði en ekki er ljóst hvort þau sem eftir standa séu í ábúð eða ekki. Í Evrópu þekkist mörg dæmi um að ríki reyni að vernda landbúnaðarland gegn spákauðmennsku, of mikilli samþjöppun eignarhalds og því að land fari úr landbúnaðarnotkun. Íslensk stjórnvöld hafi einnig reynt að gera það en almennt sé meiri áhersla lögð á að landbúnaðarland haldist í virkni eign og nýtingu, að jarðir standi ekki auðar og að stutt sé við nýliðun í landbúnai í samanburðarlöndum í Evrópu. Fáar kvaðir í samanburði við nágrannalöndin Markmið skýrslunnar var að greina lagaumhverfi um eignarhald á landbúnaðarlandi, meðal annars með hliðsjón af fæðuöryggi. Þá gerðu höfundar hennar samanburð á þeim lögum sem gilda á Íslandi annars vegar og í nokkrum nágrannalöndum og á EES-svæðinu. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúkt í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskólinn og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar er annar höfunda skýrslunnar.Vísir/Vilhelm Skýrsluhöfundar benda á að hér á landi séu tiltölulega fáar kvaðir settar á eignarhald og viðskipti með landbúnaðarland í samanburði við sum nágrannlandanna. Vísbendingar séu um að þeum lagaákvæðum sem sé ætlað að takmarka óhóflega jarðasöfnun einstaklinga og fyrirtækja sé ekki beitt. Erfitt sé að leggja mat á raunverulega stærð góðs ræktarlands þar sem ósamræmi sé á milli skráningar, skipulags og raunverulegrar nýtingar landbúnaðarlands. Eftirland með þróun eignarhalds virðist einnig veikt og ófullnægjandi. Takmarka hversu lengi dánarbú geti átt jarðir Mörg nágrannaríkjanna vinna að markmiðum sínum um að halda landbúnaðarjörðum í notkun með stjórntækjum eins og leyfisskyldu, forkaupsrétti, takmörkunum á sameign og tímatakmörkum á eignarhaldi dánarbúa. Á Íslandi gildir aftur á móti ekki almenn leyfisskylda um kaup á jörðum Íslandi og segja skýrsluhöfundar tiltölulega auðvelt að taka land úr landbúnaðarnotkun og skipta jörðum upp. Beljur á beit. Flestar eldri hömlur á jarðaviðskipti voru felldar brot með nýjum jarðalögum sem Alþingi samþykkti árið 2004. Markmiðið var að færa viðskipti með jarðir nær almennum fasteignamarkaði.Vísir/Anton Brink Á meðal tillagna þeirra til úrbóta er að sá tími sem dánarbú geta átt lögbýli verði takmarkaður og að markvisst verði unnið gegn sameign á jörðum. Benda skýrsluhöfundar á að í Noregi og Svíþjóð geti dánarbú til að mynda ekki átt bújarðir lengur en í þrjú til fimm ár. Einnig er lagt til að skil á milli lögbýla í landbúnaðartengdum rekstri, í skógrækt, í eyði og þeirra sem séu nýtt til íbúar eða sem frístundalóðir verði skerpt til þess að hægt sé að halda betur um gott ræktunarland. Mikilvægt sé að bæta skráningu á góðu ræktarlandi og tryggja að það verði ekki nýtt eða skipulagt til annarra nota. Tveir útlendingar eiga um fjörutíu lögbýli Aðeins er vikið að jarðasöfnun og erlendu eignarhaldi í skýrslunni. Erlent eignarhald á lögbýlum er ekki sagt umfangsmikið á Íslandi. Tveir erlendir einstaklingar eigi þó samanlagt nærri fjörutíu lögbýli í gegnum félög sem séu skráð hérlendis. Félag breska auðkýfingsins Jims Ratcliffe, Sólstaðir ehf., er skráð fyrir 24 jörðum og Fljótabakki ehf,, sem er í eigu bandarísks ferðaþjónustufyrirtækis, á tíu jarðir. Sjö önnur erlend fyrirtæki eiga samtals 21 jörð. „Ástæða er til að kanna reynsluna af nýlegum ákvæðum í jarðalögum sem tengjast jarðasöfnun,“ segir í skýrslunni. Víðtækt svigrúm en með lykilreglum Skýrsluhöfundarnir telja að nokkuð víðtækt svigrúm sé innan Evrópusambandsins til þess að móta reglur um eignarhald og viðskipti með landbúnaðarlandi. Það sé þó bundið af nokkrum lykilreglum sem Ísland sem EES-ríki, þyrfti að hafa til hliðsjónar. Reglur þurfi að hafa skýr markmið sem taki mið af almannahagsmunum, til dæmis um vernd búsetu í dreifbýli, sjálfbærum landbúnaði, náttúruvernd og aðgangi ungra bænda að landi. Fátt kemur í veg fyrir að skipt sé um notkun á landbúnaðarjörðum á Íslandi. Á Bessastöðum hefur til dæmis forseti tekið sér bólfestu.Vísir/Vilhelm Gæta þurfi meðalhófs ekki ganga lengra en þörf krefji til þess að ná slíkum markmiðum. Þannig beiti ríki frekar tækjum eins og forkaupsrétti, stærðarmörkum, gagnsæi og verðeftirliti frekar en algjörum bönnum eða ströngum takmörkunum. Eins þurfi að gæta jafnræðis innan EES-svæðiðsins. Beita verði sömu reglum gagnvart innlendum aðilum og borgurum annarra EES-ríkja nema mjög brýnar ástæður mæli gegn því. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir ræddi skýrsluna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Landbúnaður Stjórnsýsla Matvælaframleiðsla Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jarðakaup útlendinga EES-samningurinn Evrópusambandið Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Sjá meira