Innherji

Er­lendir grein­endur lækka verðmöt sín um ríf­lega fjórðung eftir á­fallið hjá Ocu­lis

Hörður Ægisson skrifar
Oculis var skráð á Aðalamarkað í Kauphöllinni árið 2024, en áður hafði líftæknifélagið verið tekið til viðskipta á markaði í Bandaríkjunum.
Oculis var skráð á Aðalamarkað í Kauphöllinni árið 2024, en áður hafði líftæknifélagið verið tekið til viðskipta á markaði í Bandaríkjunum. Vísir/Vilhelm

Greinendur fjölmargra erlendra fjármálastofnana hafa að meðaltali lækkað verðmat sitt á Oculis um ríflega fjórðung eftir að eitt lyfjum þess tókst ekki að ná markmiðum sínum í lykilrannsókn en telja félagið eftir sem áður verulega undirverðlagt á markaði. Gengi bréfa Oculis hélt áfram að lækka þegar markaðir opnuðu vestanhafs í dag.


Tengdar fréttir

Grein­endur „hissa“ með niðurstöðuna hjá Ocu­lis en mæla enn með kaupum

Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×