Viðskipti innlent

Tíu ára for­ritari upp­lýsir um markaðs­virði pókémonspila

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Alexander Jósafat Hinriksson forritaði síðuna.
Alexander Jósafat Hinriksson forritaði síðuna. vísir/sigurjón

Næst hittum við tíu ára strák sem forritaði vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um markaðsvirði pókémonspila. Hann segir mjög erfitt að forrita en dýrmætt að vita hvers virði spilin eru og hvetur börn til að prufa forritun.

Frumkvöðullinn ungi heitir Alexander Jósafat Hinriksson og segir ástæðu þess að hann ákvað að forrita vefsíðuna einfalda:

„Ég elska pókémon og svo ákvað ég að gera pókemonforrit því mér finnst smá gaman að gera forrit, þannig ég ákvað að gera pókémon forrit.“

Hvað gerir maður þegar maður er tíu ára og vill forrita, hvernig fer maður að því?

„Maður byrjar að skrifa á blað allt sem maður vill að forritið geti gert og svo gerir maður með gervigreindinni eitt í einu.“

Hann segir forritun ekki auðvelda en fékk dygga aðstoð frá föður sínum, Hinriki Jósafat Atlasyni, frumkvöðli. Vinna tók töluverðan tíma en afurðin er Trademon.tec. Þar geta notendur skráð spilin sín, athugað virði þeirra og boðið vinum að bítta spilum.

Rætt var við Hinrik á Vísi um helgina. Þar greidi hann meðal annars frá því að þeir feðgar væru nýkomnir heim af nýsköpunarviðburði sem haldinn var í Neskaupstað. Þar kynnti Alexander nýju vefsíðuna sína.

Áhersla á öryggi barna

„Hér er ég búin að senda Lamoc vinabeiðni og hér eru allir vinir mínir,“ sýnir Alexander fréttamanni.

Hugsað er fyrir öryggismálum á síðunni. Engar myndsendingar eru heimilar, ekkert spjall er í boði og hafa feðgarnir tryggt að ókunnugir finni ekki börn á síðunni. Þá geta börn einungis skipt spilum við raunverulega vini sína og er kóði sem tryggir að aðrir geti ekki haft samband.

Hér má sjá vefsíðuna.vísir/sigurjón

Alexander hefur verið duglegur að safna spilum í gegnum tíðina.

„Ég á 178 kort en fleiri heima sem eru ekki á síðunni. Og þau eru öll virði 1526 dollara.“


Tengdar fréttir

Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða

Logan Paul, glímukappi og YouTube-stjarna, seldi Pokémon-spjald fyrir rúma tvo milljarða íslenskra króna. Aldrei áður hefur Pokémon-spjald selst fyrir svo háa upphæð. 

Dýrasta spilið kostar 140 þúsund krónur

Eina Pokémon-verslun landsins hefur stækkað við sig vegna mikillar velgengni. Stök spil geta kostað tugi þúsunda króna en eigendurnir segja viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×