Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Agnar Már Másson skrifar 2. júní 2026 11:14 Enn á eftir að kynna ráðherrastólana en margt bendir til þess að Mette Frederiksen haldi forsætisráðuneytinu. Getty Ný ríkisstjórn í Danmörku vill endurvekja gamlan stórhátíðardag, boðar ókeypis tannlæknaþjónustu og hyggst afnema skattþrep fyrir millitekjuhópa annars vegar og þá allra tekjuhæstu hins vegar. Þá vill hún einnig bæta þrepi við erfðafjárskatt og vonast til að hækka skatt á hagnað sem ávinnst af sölu á eigin húsnæði.
Málefnasamningur ríkisstjórnarinnar verður kynntur klukkan 16 í dag að dönskum tíma, eða kl. 18 í dag að íslenskum, en danskir miðlar hafa margir þegar greint frá innihaldi hans. Í gær var tilkynnt um nýja ríkisstjórn í Danmörku, tveimur mánuðum eftir kosningar. Eftir lengstu meirihlutaviðræður í sögu landsins hafa fjórir flokkar – Sósíaldemókratar, Moderaterne, Sosialistisk folkeparti og De Radikale – komið sér saman og myndað miðjuvinstri stjórn. TV2 hefur eftir heimildum sínum að ríkisstjórnin ætli að ráðast í stórar skattalækkanir sem hagnist fólki með hærri tekjur. Hún ætli bæði að afnema miðjuskattþrepið, sem nær til fólks með 641 þúsund – 778 þúsund danskra króna í árstekjur (um 12,3 – 14,9 m. íslenskra króna) og hátekjuskatt, þ.e. allra hæsta skattþrepið sem leggst á alla sem þéna 2.592.700 milljónir danskra króna á ári (50 m. íslenskra króna). Framvegis vill ríkisstjórnin því hafa tvískipt skattkerfi sem samanstendur af grunnskatti fyrir tekjur allt að um 778 danskar krónur í árstekjur og svo seinna skattþrepi sem er 15 prósentustigum hærra fyrir tekjur þar yfir. Til að fjármagna skattalækkanirnar hyggst ríkisstjórnin aftur á móti viðhalda skatti á súkkulaði og sykri, sem átti að vera tímabundinn samkvæmt áformum síðustu ríkisstjórnar Moderaterne, Sósíaldemókrata og Venstre. Sömuleiðis skrifar TV2 að ríkisstjórnin ætli að breyta erfðafjárskatti þannig að einstaklingar sem erfa meira en tíu milljónir danskra króna (ca. 200 m. ísk.) muni þurfa að greiða hærri skatt. Þá vill ríkisstjórnin sömuleiðis gera kóngsbænadaginn, eða stórbeðudaginn, að stórhátíðardegi árið 2030 en það nefnist sérdanskur hátíðisdagur sem haldinn er fjórða föstudag eftir páska. Þessar breytingar eru aftur á móti háðar því, að sögn TV2, að hægt sé að finna annars staðar þá aukningu í atvinnuþátttöku sem afnám frídagsins skilaði. TV2 segir enn fremur að koma eigi á fót nefnd sem á að meta mismunandi líkön fyrir nýja skattlagningu á söluhagnaði fasteigna, sem eru þeir peningar sem fást í hagnað við sölu á eigin húsnæði. Þetta verði þó ekki fest í sessi fyrr en í fyrsta lagi eftir á næsta kjörtímabili. Þetta eigi þó ekki að gilda um verðhækkanir sem þegar hafa áunnist. Dagblaðið Politiken greinir frá því að farið að ríkisstjórninin muni tryggja ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir alla Dani á næstu tíu árum. Til stendur að ríkisstjórnarflokkarnir kynni ráðherrastóla á morgun, miðvikudag.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira