Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Kristján Már Unnarsson skrifar 2. júní 2026 23:05 Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er framsögumaður álits stjórnarmeirihlutans í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Bjarni Einarsson Stjórnarmeirihlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis leggur til í nefndaráliti um samgönguáætlun að staðið verði við þá forgangsröðun jarðganga að Fljótagöng verði í fyrsta sæti en Súðavíkurgöng og Fjarðagöng í öðru til þriðja sæti. Talsmaður meirihlutans segir kaflaskil framundan í samgöngumálum á Íslandi.
Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2030 en með henni er verið að ráðstafa 360 milljörðum króna, þar af 277 milljörðum til vegaframkvæmda. „Þetta er aukning um 157 milljarða frá síðustu samgönguáætlun. Þannig að það er verið að gefa verulega í hvað varðar fjármögnun,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og framsögumaður álits stjórnarmeirihlutans í þingnefndinni, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Hún segir mestu muna um aukið fé til viðhalds á vegakerfinu. „Við höfum verið að láta það grotna mjög mikið niður síðustu ár, með því að vera ekki að fjárfesta í viðhaldi. Þannig að þetta er bara forgangsröðun sem er alveg skýr. Við ætlum að rjúfa þennan vítahring varðandi viðhald vega.“ Þingnefndin gerir óvenju litlar breytingar frá tillögu ráðherra. Sú helsta er að flýta uppbyggingu fjallvegarins um Öxi, milli Djúpavogs og Egilsstaða, með því að færa til 800 milljóna króna framlag sem ætlað var í nýja vegtengingu við Egilsstaði. Horft niður í Berufjörð af veginum um Öxi.Egill Aðalsteinsson Eitt heitasta málið er hvar eigi að grafa næstu jarðgöng. Þingnefndin heldur sig við tillögu innviðaráðherra. Ása Berglind segir jarðgangastopp verða rofið. „Við hefjumst handa við Fljótagöng á næsta ári, 2027, en þá eru tíu ár síðan síðast var byrjað að bora. Forgangsröðun ráðherra liggur fyrir og við erum ekki að gera breytingar á henni. Þannig að þá eru í öðru til þriðja sæti Súðavíkurgöng og Fjarðagöng.“ Í flugvallarmálum er gert ráð fyrir 1.200 milljónum króna til byggingar flugstöðvar í Reykjavík. „Það er hugsað sem svona samvinnuverkefni með einkaaðilum.“ Hugmynd að útliti nýrrar flugstöðvar í Reykjavík, samkvæmt teikningu sem Icelandair lét gera fyrir sex árum.Mynd/Kurtogpí. Skoða á nýtt flugvallarstæði fyrir Ísafjörð. „Flugvöllurinn á Ísafirði felur í sér ákveðnar takmarkanir, til dæmis varðandi stærð flugvéla og annað slíkt. Þannig að þetta er vinna sem við viljum sjá að verði farið í.“ Sex ár eru frá því samgönguáætlun var síðast samþykkt á Alþingi. Fyrri áætlanir undanfarinna ára hafa setið fastar í þingnefnd. Ása Berglind kveðst sannfærð um að samgönguáætlun klárist núna og segir stjórnarliðið stolt af henni, eins og heyra má hér: „Við erum ákaflega stolt af þessu. Þarna er verið að bæta við heilmiklu fjármagni, byrja að vinna á innviðaskuldinni, stórauka við viðhald og við erum auðvitað bara rétt að byrja. Við munum sjá Innviðafélagið fara í gang. Það verður líka samþykkt á þessu vori og við munum vonandi sjá það fara í gang á næsta sumri. Og þá held ég að við munum sjá alvöru kaflaskil í samgöngumálum á Íslandi,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Hér má heyra rök innviðaráðherra fyrir breyttri jarðgangaröð:
Jarðgöng á Íslandi Samgönguáætlun Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Vegagerð Tengdar fréttir Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir ástæðu sex ára jarðgangastopps vera þá að síðasta ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til þess að fara í Fjarðarheiðargöng vegna gríðarlegs kostnaðar. Hann segir Vegagerðina telja að framkvæmdir við Fljótagöng geti hafist sumarið 2027. 19. mars 2026 20:20 Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20 Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Breikkun Suðurlandsvegar meðfram Rauðavatni og Norðlingaholti frestast fram á næsta áratug, sem og breikkun Reykjanesbrautar milli Njarðvíkur og Leifsstöðvar. Endurbætur á Reykjanesbraut um Hafnarfjörð bíða og einnig gerð mislægra gatnamót við Bústaðaveg. 8. desember 2025 23:36 Mjófirðingar í skýjunum og sjá fjörðinn sinn rísa á ný „Mjófirðingar og allir sem hafa einhverja tengingu við Mjóafjörð eru náttúrulega bara í skýjunum. Þetta breytir hreinlega öllu fyrir Mjóafjörð. Núna mun hann rísa úr ösku sinni og verða aftur að byggilegum stað innan fjórðungsins,“ segir Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar um breytta forgangsröðun jarðganga. 4. desember 2025 22:30 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira
Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir ástæðu sex ára jarðgangastopps vera þá að síðasta ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til þess að fara í Fjarðarheiðargöng vegna gríðarlegs kostnaðar. Hann segir Vegagerðina telja að framkvæmdir við Fljótagöng geti hafist sumarið 2027. 19. mars 2026 20:20
Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20
Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Breikkun Suðurlandsvegar meðfram Rauðavatni og Norðlingaholti frestast fram á næsta áratug, sem og breikkun Reykjanesbrautar milli Njarðvíkur og Leifsstöðvar. Endurbætur á Reykjanesbraut um Hafnarfjörð bíða og einnig gerð mislægra gatnamót við Bústaðaveg. 8. desember 2025 23:36
Mjófirðingar í skýjunum og sjá fjörðinn sinn rísa á ný „Mjófirðingar og allir sem hafa einhverja tengingu við Mjóafjörð eru náttúrulega bara í skýjunum. Þetta breytir hreinlega öllu fyrir Mjóafjörð. Núna mun hann rísa úr ösku sinni og verða aftur að byggilegum stað innan fjórðungsins,“ segir Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar um breytta forgangsröðun jarðganga. 4. desember 2025 22:30