Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. júní 2026 12:01 Frá Grindavíkurbæ. Vísir/Sigurjón Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað.
Í tilkynningu skorar Járngerður, sem eru hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista. Erla Ólafsdóttir stjórnarmaður í Járngerði segir stöðuna óásættanlega. „Þetta setur allt í uppnám hjá okkur Grindvíkingum, varðandi það. Það eru margar fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka, hefja skólahald og máta sig við umhverfið í Grindavík, breyttar aðstæður og eru til í að taka þátt en þetta setur allt úr skorðum varðandi það.“ Það hafi staðið til síðan fyrir áramót að kynna endurkaupaáætlun fyrir Grindvíkingum og hvernig þeir geti snúið til baka á sín fyrri heimili. Erla segir þeim fyrirætlunum ítrekað hafa verið frestað. „Þangað til þetta útspil kom. En núna eru takmarkanir þannig að þú mátt dvelja í húsinu þrettán nætur í mánuði. Og það er náttúrulega engin fjölskylda sem flyst í húsnæði eða flytur barnið sitt í skóla miðað við þær forsendur.“ Erla segir að Járngerður vilji að ríkisstjórn Íslands bregðist við, enda Þórkatla sé í eigu ríkisins. „Þess vegna skorum við á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að bregðast við þessu. En að sjálfsögðu munum við Grindvíkingar aldrei gefa neinn afslátt af öryggi. Við viljum alltaf setja öryggi á oddinn og við teljum okkur vera með varnir og erum alveg viðbúin því að þurfa kannski að rýma heimili okkar einu sinni, tvisvar. Það eru varnargarðar, það eru varnarkerfi og svo hefur verið unnið markvisst í sprunguviðgerðum í bænum, þannig við teljum okkur alveg vera fær um að búa í bænum við þessar aðstæður.“
Grindavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli Sjá meira