Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2026 15:40 Mynd þessi var í raun tekin af Abell S1063 vetrarbrautinni en fangaði í leiðinni rauðan blett sem hefur verið kallaður GLIMPSE-17775. ESA/James Webb Litlir rauðir blettir á myndum James Webb-geimsjónaukans (JWST) hafa um nokkuð skeið vakið furðu stjörnufræðinga og geimvísindamanna. Nú hefur þessi gáta mögulega verið leyst og rennir lausnin stoðum undir tilvist þess sem kallað er „svartholsstjarna“.
Tiltölulega fljótt eftir að JWST var tekinn í notkun fóru áðurnefndir rauðir blettir að vekja furðu. Þeir sáust víða á myndum geimsjónaukans og höfðu margir orðið til um sex hundruð milljónum árum eftir stórahvell. Síðan þá hafa margir vísindamenn skoðað hinar ýmsu kenningar um blettina og þar á meðal kenningu að um svarthol sé að ræða sem umvafin eru rafgasi eða plasma. Fyrsta svartholið var ljósmyndað árið 2019. Áhugasamir geta kynnt sér svarthol frekar hér á Stjörnufræðivefnum. Á vef Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) segir að hópur vísindamanna við Háskóla Texas hefi rýnt í gögn JWST og einbeitt sér að einum tilteknum bletti sem ber nafnið GLIMPSE-17775. Einstaklega mikið af gögnum voru til um þann blett, þar sem hann var í bakgrunni vetrarbrautar sem JWST var notaður til að skoða. Miðað við greiningu á fjarlægð blettsins er útlit fyrir að ljósið sem berst til jarðarinnar um þetta leyti hafi lagt af stað þegar alheimurinn var 1,8 milljarða ára gamall. Alheimurinn er talinn um 13,8 milljarða ára gamall. Jörðin er talin 4,5 milljarða ára gömul. Þar sem bletturinn var á bakvið vetrarbrautina hjálpaði líka til að vetrarbrautir eiga það til að beygja ljósið sem ferðast nærri þeim og getur það leitt til einskonar stækkunarglersáhrifa, sem áttu við í tilfelli GLIMPSE-17775. Skýringarmynd af ljósrofsgreiningu vísindamanna á gögnum frá frá James Webb geimsjónaukanum um GLIMPSE-17775. Niðurstöður þessara vísindamanna benda til þess að þarna sé um að ræða stærðarinnar svarthol sem sé umvafið rafgasi. Þetta er kallað „svartholsstjarna“ en er í rauninni stórt og mögulega hratt stækkandi svarthol sem er þakið þykku lagi af rafgasi. Það gas hefur svo áhrif á það ljós sem berst frá svartholinu svo það lítur út eins og lítill rauður blettur á myndum JWST. Sjá einnig: Langstærsta svartholið í Vetrarbrautinni okkar til þessa James Webb er stærsti og besti geimsjónauki sem hefur verið framleiddur og er honum meðal annars ætlað að varpa ljósi á uppruna alheimsins og taka hágæðamyndir af fjarlægum stjörnuþokum. JWST nemur innrautt ljós og þarf hann að vera gífurlega kaldur til að virka rétt og svo geislun frá honum sjálfum trufli ekki skynjara sjónaukans. Hann á að verða -233 gráðu kaldur (um fjörutíu Kelvin). Skynjarar í sjónaukanum verða einungis -266 gráður eða um sjö kelvin. Núll kelvin eða -273 gráður kallast alkul og er lægsta fræðilega hitastig alheimsins. JWST var skotið á loft um jólin 2021 en fyrsta myndin úr honum var birt í júlí 2022.
Geimurinn Vísindi James Webb-geimsjónaukinn Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira